Keppni
Skráning í tvær eftirsóttustu matreiðslukeppnir landsins hafin
Keppnirnar um Kokk og Grænmetiskokk ársins verða haldnar í IKEA 26. til 29. mars næstkomandi.
Skráningarfrestur er til kl. 22:00 sunnudaginn 22. mars.
Þátttaka er frí og eru allir matreiðslumenn með sveinspróf hvattir til að taka þátt. Grunnhráefni í forkeppninni verða kynnt mánudaginn 23. mars kl. 14.00 hjá Mata, Sundagörðum 10 og í beinni útsendingu á miðlum Kokkalandsliðsins.
Forkeppnir í báðum keppnum fara fram fimmtudaginn 26. mars þar sem keppendur þurfa að skila mynd og uppskrift ásamt því að matreiða rétt sinn, keppendur munu hafa 90 mínútur til að afgreiða réttinn en keppendur mega koma með hráefnið fulleldað ef þeim hugnast svo.
Úrslit í Grænmetiskokki ársins fara fram föstudaginn 27. mars, þar sem keppendur undirbúa og matreiða þriggja rétta matseðil.
Úrslit í keppninni um Kokk ársins fer svo fram sunnudaginn 29. mars. Þar undirbúa keppendur og matreiða þriggja rétta matseðil.
Nánari upplýsingar verða sendar á keppendur við skráningu.
Mynd: Mummi Lú
-
Keppni7 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Nemendur & nemakeppni4 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn4 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar3 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Frétt3 dagar síðanKornax innkallar Kanilsnúðaköku
-
Markaðurinn2 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“




