Keppni
Skráðu barinn eða veitingahúsið þitt í Reykjavík Cocktail Week
Stærsta kokteilahátíð Íslands, Reykjavík Cocktail Week fer fram dagana 13. – 19. apríl 2026!
Skráðu staðinn þinn til leiks, og fulltrúar Barþjónaklúbbs Íslands hafa samband fljótlega.
Hver staður skilar inn sér útbúnum kokteilaseðli með að minnsta kosti 5 drykkjum (einn óáfengur), sem innihalda vörur frá að minnsta kosti 5 samstarfsaðilum RCW. Við hvetjum þó staði til þess að hafa vörur frá þeim öllum.
Kostnaður fyrir þátttöku í RCW 2026 fyrir hvern stað er 75.000 krónur sem greiðist sem styrkur til Barþjónaklúbbs Íslands. Þeir staðir sem skrá sig og senda inn kokteilaseðil á réttum tíma fá 15.000 kr. afslátt og dettur því kostnaðurinn niður í 60.000 kr.
- Skráningarfrestur er 13. mars
- Skilafrestur kokteilaseðils er 25. mars
Smelltu HÉR til að sjá allar upplýsingar og reglur sem fylgja þátttökunni.
-
Keppni3 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Keppni3 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Keppni6 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt4 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Markaðurinn3 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Markaðurinn2 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta




