Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Skelfiskmarkaðurinn opnar í sumar – Viltu vinna á flottum veitingastað?
Skelfiskmarkaðurinn er nýjasta viðbót í veitingaflóru Reykjavíkur sem staðsettur verður við Klapparstíg 28-30, en stefnt er á að opna hann í júlí næstkomandi.
Eigendur Skelfiskmarkaðarins eru Hrefna Rósa Jóhannsdóttir Sætran, Guðlaugur Frímannsson, Axel Clausen matreiðslumenn og Ágúst Reynisson og Eysteinn Valsson framreiðslumenn.
Staðurinn tekur 160 manns í sæti og að auki er mjög gott útisvæði við veitingastaðinn. Axel Björn Clausen verður yfirmatreiðslumaður og yfirþjónn verður Eysteinn Valsson.
Opið verður frá 11:00 alla daga og fram á kvöld.
„Veitingastaðurinn er í brasserí stíl og við verðum með margt á boðstólum. Það er hægt að koma í kaffi og bakkelsi, vínglas eða margra rétta matseðil með víni. Mikið úrval af víni verður á boðstólnum ásamt fjölbreyttum matseðli sem ég vil ekki gefa upp að svo stöddu. Skelfiskmarkaðurinn verður mun léttari en Fiskmarkaðurinn og Grillmarkaðurinn.
Við erum með leynitromp á hendi sem við höldum alveg fyrir okkur eins og er, en það er stutt í júlí.“
Sagði Hrefna Rósa hress í samtali við veitingageirinn.is aðspurð um matargerðina og vínseðilinn.
Er annar veitingastaður á teikniborðinu eða verður þessi sá síðasti sem þú opnar?
“Við hugsum alltaf bara um eitt verkefni í einu og ef það tekst vel, dafnar og allir sáttir, þá kannski hugsum við um eitthvað meira. Það er vikulega verið að bjóða okkur húsnæði eða verið að koma með hugmyndir til okkar en við viljum hugsa vel um það sem við erum með og gera hlutina þá frekar hægar.“
Atvinna í boði
Skelfiskmarkaðurinn leitar nú að starfsfólki í margar stöður. Hér er gott tækifæri fyrir þá sem vilja starfa við splunkunýtt „concept“.
Fjölbreyttur vinnutími er í boði og hér eru störfin sem um ræðir:
Vaktstjóri í sal
- Mikil reynsla af þjónastörfum. Sveinspróf í framreiðslu. Góð kunnátta á vínum, góða skipulags og stjórnunarhæfileika. Fullt starf.
Þjónar í sal
- Reynsla af þjónastörfum. Sveinspróf í framreiðslu. Kunnátta á vínum og vinnur vel með öðrum. Bæði full vinna og hlutastarf.
Aðstoð í sal
- Reynsla af þjónastörfum æskileg. Vinnur vel með öðrum. Bæði full vinna og hlutastarf.
Barþjónar
- Reynsla af vinnu á bar æskileg. Vinnur vel með öðrum. Bæði full vinna og hlutastarf.
Þjóna nemar
- Vinnur vel með öðrum. Fullt starf.
Vaktstjóri í eldhúsi
- Mikil reynsla í eldhúsi. Sveinspróf í matreiðslu. Góð kunnátta á matreiðslu og gott orðspor, pöntun á hráefni, skipulags og stjórnunarhæfileikar. Fullt starf.
Matreiðslumaður
- Reynsla í eldhúsi. Sveinspróf í matreiðslu. Vinnur vel með öðrum. Bæði full vinna og hlutastarf.
Matreiðslunemar
- Vinnur vel með öðrum. Fullt starf.
Aðstoð í eldhús
- Vinnur vel með öðrum. Reynsla í eldhúsi æskileg. Bæði full vinna og hlutastarf.
Til að sækja um í sal: [email protected]
Til að sækja um í eldhúsi: [email protected]
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðan
Nýr veitingastaður á Laugarvatni – Sunneva og Sæþór: Við viljum að allir sem koma líði eins og þeir séu heima hjá sér
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Mesta úrval Japanskra hnífa á Íslandi
-
Keppni2 dagar síðan
Grétar Matthíasson er Meistari meistaranna
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðan
Nýtt veitingasvæði rís í austurenda Smáralindar – 13 nýir veitingastaðir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðan
Kristinn Frímann bauð upp á glæsilegt jólahlaðborð á togaranum Kaldbak – Myndir
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Mijita er fyrsti 100% glútenfríi veitingastaðurinn í Wolt appinu
-
Markaðurinn5 dagar síðan
Dill opnar á ný eftir breytingar – nú með nýju borðabókunarkerfi Noona
-
Keppni4 dagar síðan
Matreiðslukeppni stjórnmálaflokkana í húsi Fagfélagana