Markaðurinn
Sælkeradreifing ehf og Klúbbur Matreiðslumeistara endurnýja samstarfssamning sinn

Alfreð Ómar Alfreðsson forseti Klúbbs matreiðslumeistara og Gunnlaugur Örn Valsson hjá Sælkeradreifingu skrifa hér undir samstarfssamninginn
Sælkeradreifing hefur verið einn af stærstu styrktaraðilum KM til margra ára og var það mikið gleðiefni innan klúbbsins þegar þeir ákváðu að halda því áfram. Það er faginu í heild til bóta að eiga góða og trygga styrktaraðila og án þeirra væri varla hægt að halda úti jafn öflugri starfssemi og KM hefur gert hingað til.
Á dögunum var þessu hjónabandi svo endurnýjað formlega þegar Gunnlaugur Örn Valsson og forseti KM, Alfreð Ómar Alfreðsson skrifuðu undir nýjan samstarfssamning.
Sælkeradreifing og OJ&K eru undir sama þaki á Tunguhálsi og er ávallt tekið vel á móti manni þar.
Ó. Johnson og Kaaber er elsta íslenska heildverslunin. Fyrirtækið var stofnað 23. sept. 1906 af Ólafi Þ. Johnson og Ludvig Kaaber. Það var til húsa í miðbæ Reykjavíkur að Lækjargötu 4.
Í upphafi var fyrirtækið bæði í innflutningi og útflutningi.
Fyrirtækið hefur í gegnum árin stundað heildsöluviðskipti með ýmiskonar varning, allt frá minnstu önglum upp í bíla. Innflutningur á ýmiss konar mat- og hreinlætisvörum hefur þó ávallt verið grunnstarfsemi þess.
Fyrirtækið hefur um árabil staðið fyrir ýmiskonar iðnframleiðslu. Meðal annars starfrækti ÓJ&K lýsisbræðslu um árabil og framleiddi salernispappír, reiknivélarúllur og pappírspoka, auk kaffis, kaffibætis og sultur.
Kaffibrennsla ÓJ&K var stofnuð 18. júní 1924. Fyrstu 12 árin var hún til húsa í Hafnarstræti 3, þar sem höfuðstöðvar fyrirtækisins voru eftir flutninginn úr Lækjargötunni.
Árið 1936 var kaffibrennslan flutt í verksmiðjubyggingu fyrirtækisins við Sætún þar sem hún var staðsett til ársins 1967 er hún flutti að Tunguhálsi 3.
Á Tunguhálsinum var kaffið brennt, malað og pakkað til ársins 2000 þegar kaffibrennslur ÓJ&K og Akureyrar voru sameinaðar í Nýju kaffibrennsluna og framleiðslan flutt norður til Akureyrar.
ÓJ&K rekur í dag öfluga heildsölu sem selur m.a. vörur til matvöruverslana, stóreldhúsa, mötuneyta og sælgætisverslana auk ýmissa sérverslana. Í dag vinna 36 manns hjá fyrirtækinu bæði í Reykjavík og á Akureyri. Fyrirtækið er umboðsaðili fyrir mörg þekkt vörumerki eins og: Colgate, Palmolive, Wagner, Del Monte, Melroses, Kiwi, Pågens, Ota, Tate&Lyle, DeliFrance, KIM’s, Philips Lighting, Gardena, Vilkó, Mömmu, Rúbín, Braga, Kaaber o.m.fl.
Sumarið 2004 flutti fyrirtækið í nýtt og glæsilegt húsnæði við Tunguháls 1. Eru nú söluskrifstofur og lager í einu og sama húsnæðinu.
Fyrirtækið er hluthafi í Nýju Kaffibrennslunni á Akureyri, Búbót á Húsavík og Vilkó á Blönduósi
-
Markaðurinn5 dagar síðanMötuneyti á Húsavík óskar eftir öflugum einstaklingi í eldhús – Matseðlagerð, innkaup og dagleg eldamennska
-
Frétt4 dagar síðan2,3 milljarðar króna í mat á ári, svona er eldhúsið á Rikers rekið – Myndband
-
Markaðurinn2 dagar síðanReyndur kokkur óskast í vaktstjórastarf á Snæfellsnesi
-
Markaðurinn5 dagar síðanKokkur óskast á Fosshótel Jökulsárlóni, fullt starf í einstöku umhverfi
-
Markaðurinn5 dagar síðanMS kynnir tvær nýjar bragðtegundir af kotasælu í byrjun mars
-
Markaðurinn4 dagar síðanAllt að 60% afsláttur af vinsælum vörum í takmarkaðan tíma
-
Frétt5 dagar síðanFerskur kjúklingur tekinn úr sölu í nokkrum Bónusverslunum
-
Keppni3 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands blæs til kokteilkeppni, frjálst þema og vegleg verðlaun




