Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Sælkerabúðin – Það styttist í herlegheitin – Sjáðu myndirnar
Sælkerabúðin við Bitruháls þar sem gamla Ostabúðin var áður til húsa, mun opna í tveimur áföngum:
„Við ætlum að stefna á opnun á næstu dögum og búðina svo í byrjun maí, svo verður opnunarpartý eftir covid-19“
sagði Viktor Örn Andrésson matreiðslumeistari í samtali við veitingageirinn.is aðspurður um opnunina.
Sjá einnig:
Viktor Örn Andrésson og og Hinrik Örn Lárusson eru mennirnir á bak við Sælkerabúðina, en þeir reka einnig veisluþjónustuna Lux Veitingar og þeim til aðstoðar eru tveir meðlimir í Kokkalandsliðinu, en það eru þeir Ísak Aron Jóhannsson og Ísak Darri Þorsteinsson.
Sælkerabúðin mun hún sérhæfa sig í hágæða kjöti og meðlæti og einnig verður í boði heildarlausnir í tilbúnum matarpökkum, charcuterie og ostum ásamt úrval af sérvörum.
Skráðu þig á póstlistann og fáðu 2000 kr. inneign
Þeir snilldar matgæðingar sem skrá sig á póstlistann hjá Sælkerabúðinni fyrir opnun vefverslunarinnar fá 2.000 króna inneign af fyrstu kaupum.
Þú getur nýtt inneignina þegar þú pantar gómsætar vörur í vefverslun Sælkerabúðarinnar. Athugið að til að fá inneignina er nauðsynlegt að smella á staðfestingarpóstinn sem kemur. Lágmarkspöntun til að nýta inneign er 10.000 kr.
Hvað ætlar þú að hafa í kvöldmatinn eða í matarboðið?
Sælkerabúðin verður með úrval af forréttum sem þú getur valið úr til að taka með heim. Boðið verður upp á steikarpakka sem koma tilbúnir heim að dyrum. Veglegt kæliborð þar sem hágæða kjöt verður á boðstólnum, meðlæti og margt fleira.
- Forréttur: Nautaþynnur með steiktri andalifur og parmesan
- Gott úrval af grænmetisréttum og grænmetis meðlæti
- Mikið úrval af sósum
- Blandaði kjötkassinn frá Sælkerabúðinni er tilvalin í veiðiferðina eða sumarbústaðinn
- Grillaður maís
- Mikið úrval af grillpökkum
- Íslenskt nauta Rib eye
- Sérvalið og meðhöndlað Kálfa ryb eye grillað á Yakitori grilli
Myndir frá framkvæmdunum
„Við erum á lokametrunum með framkvæmdir og ættu að klárast á næstu 3 vikum.“
Sagði Viktor að lokum og sendir hér nokkrar myndir frá framkvæmdunum.
Myndir: aðsendar / facebook: Sælkerabúðin
-
Markaðurinn2 dagar síðanJóhannes Kristjánsson hefur hafið störf hjá Bako Verslunartækni (BVT)
-
Markaðurinn3 dagar síðanViltu reka kaffihús í hjarta Miðborgarinnar
-
Vín, drykkir og keppni1 dagur síðanÞessir barir og barþjónar eru tilnefndir til BCA á Íslandi
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanBarþjónar fá einstakt tækifæri til að fylgjast með sérfræðingum að störfum
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanAtvinnurekendur bregðast við: Styttri opnun og færri vaktir á krám
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun11 klukkustundir síðanGóð stemning og öflugt fagfólk á fundi Klúbbs Matreiðslumeistara hjá Bako
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanGamli Baukur heldur áfram með nýja eigendur og skýra sýn
-
Keppni1 dagur síðanTíu barþjónar tryggja sér sæti í úrslitum Bláa Safírsins





















