Markaðurinn
Rómantísk red velvet terta sem slær í gegn á konudaginn
Konudagurinn er framundan og þá er að mínu mati stórkostleg hugmynd að skella í einhverja góða köku! Mér finnast fáar tertur jafn fallegar og rómantískar og red velvet tertur. Og góðar eru þær! Þrátt fyrir að innihaldslýsingin minni á súkkulaðikökur þá smakkast þær í raun ekkert eins.
Meira kannski eins og fjarskyld frænka ef eitthvað er. Botnarnir eru þéttir en þó samt mjúkir og rjómaostakremið passar fullkomlega með. Þær bjóða líka upp á að verða fallega skreyttar og eru því einnig fullkomnar á veisluborðið.
Innihald
400 g hveiti
400 g sykur
2 msk. kakó
1 tsk. salt
1 tsk. matarsódi
2 stk. stór egg við stofuhita
115 ml jurtaolía
230 ml 18% sýrður rjómi frá Gott í matinn
1 msk. borðedik
150 g brætt smjör
2 tsk. vanilludropar
1 msk. rauður gel matarlitur
Rjómaostakrem
230 g mjúkt smjör
350 g rjómaostur til matargerðar frá Gott í matinn
1 tsk. vanilludropar
750 g flórsykur
Aðferð
Skref 1
Hitið ofninn í 175°C með blæstri. Smyrjið tvö 18cm lausbotna kökuform, gott ef hliðarnar eru frekar háar. Ég klýf svo botnana í tvennt. Einnig er hægt að nota stærri form en þá eru botnarnir látnir halda sér.
Blandið eggjum, olíu, sýrðum rjóma, ediki, bræddu smjöri, vanilludropum og matarlit saman í skál og setjið til hliðar.
Setjið þá hveiti, sykur, kakó, salt og matarsóda saman í hrærivélaskál og hrærið aðeins í til að blanda þurrefnunum saman.
Skref 2
Hellið vökvanum varlega saman við þurrefnin á meðan hrærivélin vinnur á rólegum hraða. Hrærið þar til deigið er komið vel saman en varist að hræra það of lengi.
Skiptið deiginu jafnt á milli formanna. Bakið botnana í 40-45 mín ef þið notið 18cm form. Styttið baksturstímann ef stærri form eru notuð. Botnarnir eru tilbúnir þegar prjóni sem stungið er í þá kemur hreinn upp, þ.e. blautt deig festist ekki við hann.
Kælið botnana alveg.
Skref 3
Útbúið kremið.
Setjið smjörið í hrærivélaskál og þeytið í 10 mín. Skafið vel á milli. Smjörið er tilbúið þegar það er orðið nánast hvítt.
Setjið þá 1/3 af rjómaostinum saman við ásamt vanillu og flórsykri. Byrjið að hræra rólega en aukið svo hraðan eftir því sem kremið byrjar að koma saman. Setjið þá restina af rjómaostinum saman við og hrærið þar til kremið er orðið slétt.
Varist að þeyta kremið of lengi því þá verður það of lint. Ef það gerist er gott að stinga því í kæli áður en það er sett á kökuna.
Skref 4
Kljúfið botnana og setjið 1 botn á kökudisk. Gott er að setja smá kremklessu undir fyrsta botninn svo kakan færist síður til.
Smyrjið góðu lagi af kremi yfir botninn og leggið annan yfir. Endurtakið þar til síðasti botninn er kominn. Smyrjið þunni lagi af kremi yfir alla kökuna og kælið. Þetta lag af kremi er svokallað „mylsnulag“ eða „crumb coat“ á ensku en því er ætlað að læsa inni mylsnuna af kökunni svo hún blandist ekki við kremið þegar hún er skreytt.
Smyrjið restinni af kreminu yfir kökuna og skreytið eftir eigin smekk.
Höfundur: Valgerður Gréta Gröndal – Gottimatinn.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Markaðurinn4 dagar síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Keppni5 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Markaðurinn5 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanMetnaðarfullur veitingastaður Róót opnar í Höfðatorgsturni




