Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Reisa veitingastað á súlum við Vestmannaeyjahöfn
Húsið verður reist á landfyllingu og svo verður stór viðarpallur í kringum það og hann mun hvíla á stólpum sem eru nú þegar komnir niður
, segir Hilmar Kristjánsson, framkvæmdastjóri ferðaþjónustufyrirtækisins Rib-safari.
Hann og aðrir eigendur fyrirtækisins, sem selur ferðir með slöngubátum sem er siglt umhverfis Vestmannaeyjar, hafa sótt um byggingarleyfi fyrir veitinga- og þjónustuhúsi sem á að rísa á lóð fyrirtækisins í Vestmannaeyjahöfn.
Okkur langar að mynda smá stemningu niðri á bryggju og við horfum til þess hvernig mál hafa þróast á Húsavík, Siglufirði og í Reykjavík þar sem veitingastaðir og ferðaþjónusta blómstra við höfnina. Okkar hugmynd er sú að húsið verði eins og veiðikrárnar í Eyjum voru í gamla daga en þær voru byggðar á pöllum og voru staðsettar á þessum slóðum
, segir Hilmar og bætir við að húsið verði um 170 fermetrar að grunnfleti.
Ef byggingarleyfið verður samþykkt þá verður húsið líklega tilbúið á vormánuðum 2015. Við höfum hingað til ekki verið með neitt almennilegt húsnæði undir okkar starfsemi en við erum með lítinn gám niðri á bryggju þar sem viðskiptavinir okkar geta klætt sig í björgunarvesti og annan klæðnað. Það verður því gott að fá húsnæði þar sem þeir geta sest niður og fengið sér kaffi og aðrar veitingar.
Spurður hvort fyrirtækið ætli í frekari fjárfestingar segir Hilmar að hann og aðrir eigendur þess ætli að láta framkvæmdina vegna veitinga- og þjónustuhússins duga að sinni.
Við ætlum ekki að kaupa fleiri báta í bili. Við byrjuðum með einn bát fyrir fjórum árum og erum búnir að vera með tvo báta í um þrjú ár. En það var minna um ferðir í sumar en árið áður því veðrið var eins og allir vita frekar slæmt. Svo vorum við stoppaðir í vor þegar Samgöngustofa stöðvaði allar okkar ferðir þar sem farþegar voru ekki í svokölluðum neyðarbjörgunarbúningum
, segir Hilmar og undirstrikar að allir viðskiptavinir fyrirtækisins klæðist flotgöllum og björgunarvestum.
En það var bakkað með það og það mál er nú komið í góðan farveg. Annað atriði sem gerði reksturinn erfiðari var að við höfum einungis heimild frá Samgöngustofu til að sigla með tólf farþega en bátarnir geta borið tuttugu. Af þeim sökum þurfum við að fara fleiri ferðir til að anna eftirspurn. Það mál er allt í ferli og við viljum ekki afskrifa það að við fáum að fara með fleiri farþega í hverri ferð
segir Hilmar að lokum.
Greint frá á eyjar.net.
Mynd: eyjar.net
![]()
-
Markaðurinn5 dagar síðanSuperMeals heldur áfram að þróast: kiosk-lausn tilbúin og símaveski á loka metrum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanVölundur Snær opnar nýjan veitingastað í sveitinni
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýtt mötuneyti opnað hjá Verkís á Akureyri – Myndir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanPaul Cunningham opnar sig um heilsuna og lífið eftir aflimun
-
Markaðurinn1 dagur síðanInnnes hefur samstarf við þýskan mjólkurrisa
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanGeorges Duboeuf snýr aftur á íslenskan markað
-
Markaðurinn2 dagar síðanSvona gerir þú vinsælu sítrónukökuna frá Starbucks heima
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanHrefna Sætran sæmd fálkaorðunni fyrir framlag sitt til veitingageirans



