Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Nýtt mötuneyti opnað hjá Verkís á Akureyri – Myndir

Birting:

þann

Nýtt og glæsilegt mötuneyti hefur verið tekið í notkun í húsnæði Verkís á Akureyri. Þar er um að ræða fullbúna veitinga- og kaffiaðstöðu sem þjónar starfsfólki Verkís og fleiri fyrirtækja í húsinu, auk þess sem rýmið er nýtt fyrir fundi, viðburði og félagsstarf.  Sveinn Thorarensen matreiðslumeistari stýrir matargerð og rekstri mötuneytisins.

Sveinn býr yfir áratugareynslu úr matvæla- og veitingageiranum. Hann lauk sveinsprófi árið 2015 og meistararéttindum árið 2019 og hefur starfað á veitingastöðum, hótelum og í stóreldhúsum víðs vegar um landið.

Matsalurinn rúmar um 50 manns í sæti og er búinn fullkomnu framleiðslueldhúsi þar sem heitur hádegisverður er eldaður daglega. Samhliða því hefur verið komið upp kaffiaðstöðu með kaffihúsayfirbragði sem ætlað er að skapa notalegt umhverfi fyrir starfsfólk yfir daginn.

Nýtt mötuneyti opnað hjá Verkís á Akureyri

Sveinn Thorarensen matreiðslumeistari

„Um er að ræða matsal fyrir um 50 manns í sæti með fullbúnu framleiðslueldhúsi. Boðið er upp á heitan mat í hádeginu og einnig er á staðnum kaffiaðstaða sem býður upp á kaffihúsastemningu,“

segir Sveinn í samtali við veitingageirinn.is.

Aðstaðan markar ákveðin tímamót fyrir Verkís á Akureyri, þar sem fyrirtækið býður nú í fyrsta sinn upp á heitan mat sem framleiddur er á staðnum. Salurinn er jafnframt nýttur fyrir ýmsa viðburði, bæði fyrir viðskiptavini og starfsfólk.

Verkís deilir húsnæðinu með Advania, KPMG, ECIT og Akureyrarapóteki og hafa starfsmenn þeirra einnig aðgang að mötuneytinu. Samtals geta um 100 manns nýtt sér þjónustuna og hefur aðsókn verið stöðug frá opnun.

„Það eru um það bil 100 manns sem geta nýtt sér þjónustuna og að jafnaði hafa 40 til 50 gestir komið í mat á hverjum degi. Miðað við almenn viðmið fyrir mötuneyti á vinnustöðum teljast þær tölur mjög eðlilegar og sýna góða og stöðuga nýtingu,“

segir Sveinn.

Lögð er áhersla á fjölbreyttan og næringarríkan mat þar sem alþjóðlegir réttir og hefðbundinn heimilismatur fara saman. Einnig er boðið upp á fjölbreyttan salatbar. Markmiðið er jafnframt að nýta svæðisbundið hráefni eins og kostur er og eiga viðskipti við framleiðendur sem leggja áherslu á sjálfbærni.

„Við munum taka mið af svæðisbundnu hráefni eins mikið og hægt er. Matseðillinn verður blanda af alþjóðlegum réttum í bland við þjóðlegan heimilismat ásamt fjölbreyttum salatbar.“

Sjálfbærni er stór þáttur í starfseminni og hefur verið lögð áhersla á að halda matarsóun í lágmarki með markvissri innkaupastýringu og góðri yfirsýn yfir fjölda gesta. Starfsfólk skráir sig í mat og þannig er hægt að áætla magn og nýtingu með meiri nákvæmni.

Nýtt mötuneyti opnað hjá Verkís á Akureyri

Samkvæmt Sveini hefur árangurinn verið góður frá opnun.

„Matarsóun í tengslum við eldaðan mat hefur verið mjög góð og mælist almennt rétt yfir fimm prósent. Þetta endurspeglar vel nýtingu í framleiðslu, þar sem lítið fer til spillis eftir að matur hefur verið eldaður.“

Mötuneytið er jafnframt hugsað sem vettvangur fyrir fjölbreytta viðburði. Nú þegar hafa þar verið haldnar veislur og samkomur og hefur aðstaðan fengið jákvæð viðbrögð. Til framtíðar er stefnt að ýmiss konar þemadögum og sérviðburðum sem geta aukið líf og stemningu í kringum starfsemina.

Framtíðarsýnin er að byggja upp öflugt mötuneyti þar sem gæði, þjónusta og vellíðan fara saman. Áhersla verður lögð á bragðgóðan og fjölbreyttan mat, góða upplifun og umhverfi þar sem starfsfólk getur notið matarhlés í notalegum félagsskap. Þar með er mötuneytinu ætlað að verða mikilvægur hluti af vinnuumhverfi þeirra fyrirtækja sem starfa í húsinu.

Meðfylgjandi myndir tók Daníel Starrason

Matarmyndir: Sveinn Thorarensen

Áhugasamir geta fylgst með störfum og verkefnum Sveins Thorarensen á Instagram.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið