Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Völundur Snær opnar nýjan veitingastað í sveitinni

Ferðaþjónustusvæðið á Stóru-Laugum í Reykjadal í Þingeyjarsveit, þar sem veitingastaðurinn Þorgrímur er nýjasta viðbótin við starfsemina.
Nýr veitingastaður, Þorgrímur, hefur opnað á Aurora Farm Hotel á Stóru-Laugum í Reykjadal. Veitingastaðurinn dregur nafn sitt af Þorgrími sem fæddist á jörðinni og endurspeglar þannig sögu og arfleifð staðarins.
Í myndbandi sem birt hefur verið á samfélagsmiðlum kynnir Völundur Snær Völundarson, matreiðslumaður og einn af forsvarsmönnum staðarins, nýja veitingastaðinn. Þar segir hann að nafnið Þorgrímur sé valið til heiðurs langalangafa sínum, Þorgrími, sem fæddist á Stóru-Laugum áður en hann flutti síðar í Nes.

Völundur Snær Völundarson sýnir frá veitingastaðnum Þorgrími, þar sem lögð er áhersla á viðareldun, árstíðabundið hráefni og persónulega upplifun.
Veitingastaðurinn er lítill og tekur aðeins um 50 gesti í sæti hverju sinni. Að sögn Völundar er lögð áhersla á persónulega þjónustu og notalegt andrúmsloft fremur en formlegan veitingarekstur.
Á heimasíðu staðarins kemur fram að hráefnið sé fengið frá bændum og framleiðendum í nágrenninu eftir því sem kostur er. Matseðillinn tekur reglulegum breytingum eftir árstíðum og aðgengi að fersku hráefni. Á hverju kvöldi er boðið upp á kjötrétt og fiskrétt auk annarra rétta sem unnir eru úr því besta sem árstíðin hefur upp á að bjóða.
Sérstaða eldhússins felst meðal annars í því að maturinn er eldaður í viðarofni sem kyntur er með birki. Í kynningarmyndbandinu segir Völundur að þar séu meðal annars framreiddir kjöt-, fisk- og grænmetisréttir auk þess sem boðið sé upp á pizzur. Þá sé allt brauð bakað á staðnum á hverjum morgni.
Að sögn forsvarsmanna er matsalurinn meðvitað hafður lítill til að tryggja rólega og persónulega upplifun. Vegna takmarkaðs sætafjölda er nauðsynlegt að bóka borð fyrir fram, einnig fyrir gesti hótelsins.
Þorgrímur er opinn alla daga frá klukkan 18 til 22 og býður gestum upp á matarupplifun í friðsælu umhverfi Reykjadals þar sem áhersla er lögð á vandað hráefni, eldun yfir viði og persónulega þjónustu.
Myndskeið
Myndir: Facebook / Þorgrímur Restaurant og skjáskot úr myndbandi
-
Markaðurinn2 dagar síðanSuperMeals heldur áfram að þróast: kiosk-lausn tilbúin og símaveski á loka metrum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðanNýtt mötuneyti opnað hjá Verkís á Akureyri – Myndir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanNýr kafli hefst í sögu Noma
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanGeorges Duboeuf snýr aftur á íslenskan markað
-
Frétt7 dagar síðanNói Síríus lækkar verð á súkkulaði um 10%
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanGrös opnar í Skúlagarði með áherslu á hráefni úr heimabyggð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanHrefna Sætran sæmd fálkaorðunni fyrir framlag sitt til veitingageirans
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanBreskir sigurvegarar í fish and chips-keppni heillaðir af íslenskum sjávarútvegi


