KM
Október fundur Klúbbs Matreiðslumeistara

Annar fundur vetrarins var heimsókn í ölgerðina til að skoða nýju aðstöðu þeirra og fá fróðleik um starfsemi þeirra.
Hófst fundurinn á því að bruggmeistari hússins Guðmundur Mar Magnússon hélt fyrirlestur um mismunandi tegundir af bjór og fengu menn að smakka á guðveigunum, svo kynnti Valur Valsson framkvæmdarstjóri Gnótt innviði ölgerðarinnar og höfðu menn gaman af að fá svona vel fram setta kynningu um starfsemina.
Síðan var farin skoðunaferð um fyrirtækið og bættist þá í hópinn Haukur Ragnarsson frá Gnótt og höfðu menn á orði að þetta hefðu þeir ekki vilja missa af. Í lokin var þeim þökkuð fræðslan og afhentur fáni KM eins hefð hefur skapast fyrir þegar við heimsækjum fyrirtæki.
Næst var borðhald en þau Kata og Brynjar báru ábyrgð á matnum sem var Októberfest, hvað annað í ölgerð, með hamborgarhrygg, pylsum, kartöflumús, kartöflusalati, súrkáli sinnepi og alles sem prýða svona hlaðborð. Var gerður góður rómur að matnum og eiga þau bestu þakkir skyldar fyrir það.
Þá kynnti Karl Viggó Vigfússon framkvæmdarstjóri landsliðsins hverjir væru í hópnum sem þegar hefur hafið æfingar vegna Lux 2010.
Svo kynnti Hrefna Rósa Sætran Ungkokka íslands og er þar að myndast góður kjarni fyrir framtíðarkeppendur.
Varð það samdóma álit flestra að þessi fundur hefði heppnast mjög vel og vonandi verður það til þess að menn verði virkari í KM.
Smellið hér til að skoða myndir frá fundinum.
>> Staðsetning myndasafn: / Meistararnir KM / Fundur 6 okt 2009
Text: Sverrir
Mynd: Guðjón
-
Keppni2 dagar síðanÍslenskir nemar keppa á Norrænu nemakeppninni í Svíþjóð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanNýlegur veitingastaður og aukin áhersla á heildarupplifun hjá Bragðlaukum
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanNýr bjór þróaður með íslensku pylsuna í huga
-
Markaðurinn2 dagar síðanLærðu að fanga augnablikið: Myndagerð fyrir samfélagsmiðla í veitingageiranum
-
Starfsmannavelta1 dagur síðanLamb Street Food og Mat Bar hætta rekstri
-
Bocuse d´Or2 dagar síðan„Ég var glaður og þakklátur fyrir að vera partur af þessu teymi“ segir Jakob Árni
-
Markaðurinn2 dagar síðanNámskeið: Ægir Friðriksson matreiðslumaður kennir flökun á fiski
-
Frétt4 dagar síðanKóríanderfræ innkölluð eftir að hættulegt efni greindist



