Frétt
Oft um 1.000 kr. munur á kílóverði af fiski
Oft var töluverður munur á kílóverði af fiskmeti í verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ sem framkvæmd var miðvikudaginn 4. maí. Algengast var að 20-40% munur væri á kílóverði af fiski í könnuninni. Í 13 tilfellum af 27 var 600-800 kr. munur á hæsta og lægsta kílóverði og í jafn mörgum tilfellum nam verðmunurinn 900-1.200 krónum.
Sem dæmi um mikinn verðmun má nefna 58% mun á hæsta og lægsta kílóverði af þorskflökum, 107% mun á kílóverði af rauðsprettuflökum, 65% mun á kílóverði af fiskrétti með löngu og 52% mun á kílóverði af plokkfiski.
Litla fiskbúðin Helluhrauni var oftast með lægsta verðið í könnuninni, í 18 tilfellum. Næst oftast var Fiskbúð Sjávarfangs á Ísafirði með lægsta verðið, í 4 tilfellum. Hafið og Fiskbúð Suðurlands voru oftast með hæsta verðið, í 10 tilfellum hvor um sig.
Verðtökufólki verðlagseftirlitsins var meinað að taka niður verð hjá eftirfarandi fyrirtækjum: Fiskbúðinni Hafberg, Fiskbúð Fúsa, Fiskbúðinni Vegamót, Fylgifiskum Nýbýlavegi og Melabúðinni. Að neita þátttöku í verðkönnun samræmist ekki sjálfsögðum rétti neytenda að fá skýrar og skilmerkilegar upplýsingar um verð vöru og þjónustu á sölustað.
Framganga sem þessi vekur upp spurningar um af hverju fyrirtæki telji hagsmunum sínum betur borgið með því upplýsa neytendur ekki um verð, að því er fram kemur á vef ASÍ.
Nánar er hægt að fræðast um verðkönnunina á heimasíðu ASÍ hér.
Uppfært: 13. maí 2022
Sjá einnig: Sigfús fisksali gagnrýnir ASÍ
Mynd: úr safni
-
Markaðurinn4 dagar síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Markaðurinn4 dagar síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Keppni18 klukkustundir síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
-
Frétt6 dagar síðanStærsti matarviðburður landsins fram undan í Hljómskálagarðinum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanSkúrinn í Stykkishólmi stefnir á lokun eftir 11 ára rekstur
-
Frétt4 dagar síðanÁttu þessa Voga ídýfu? Ekki neyta hennar ef þú ert með hveitiofnæmi



