Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Nýr veitingastaður í Grósku

Birting:

þann

Nýr veitingastaður í Grósku

Nýr veitingastaður opnar nú í vikunni í Grósku, en veitingastaðurinn er staðsettur í suðurenda Grósku þar sem rekin var mathöllin Vera í rúmt ár.

Staðurinn hefur fengið nafnið EIRIKSDOTTIR Gróska og eigendur eru þeir sömu og EIRIKSSON Brasserie, Laugavegi 77.

Nýr veitingastaður í Grósku

Veitingahjónin Sara Dögg Ólafsdóttir og Friðgeir Ingi Eiríksson

Þar í framlínu eru veitingahjónin Friðgeir Ingi Eiríksson og Sara Dögg Ólafsdóttir ásamt Sveini Þorra Þorvaldssyni, auk þeirra eru Birgir Már Ragnarsson og Silja Hrund Júlíusdóttir eigendur staðarins.

Guðmundur Kr. Ragnarsson, kokkur á veitingastaðnum og veisluþjónustunni Laugaási

Guðmundur Ragnarsson, þekktastur undir nafninu “Gummi í Laugaás”

Á nýja staðnum er Guðmundur Ragnarsson með þeim í liði sem er þekktastur undir nafninu “Gummi í Laugaás”

Útlit staðarins verður í sama stíl og EIRIKSSON Brasserie sem var hannað af ítalska hönnunarfyrirtækinu Design group Italia.

EIRIKSDOTTIR er hádegisstaður þar sem boðið er upp á heitan mat á virkum dögum frá 11:30-14:00 og val er á milli nokkurra rétta sem breytast reglulega.

Einnig verður hægt að taka með sér salöt, samlokur og fleiri rétti úr kæli fyrir þá sem hafa minni tíma.

Glæsilegur bar verður á staðnum sem hægt er að fá sér drykki og létta rétti fram eftir degi.

Á kvöldin og um helgar er möguleiki á að bóka veislur en það komast allt að 200 manns í sæti og mun fleiri í standandi veislur.

Myndir: aðsendar

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið