Freisting
Ný norræn matargerð hvetur til betri lýðheilsu
|
|
Norræna áætlunin um nýja norræna matargerðarlist hefur áhrif á milljóna áætlun. Áætlunin hefur nefnilega orðið hvatning að rannsóknaverkefni sem miðar að því að bæta lýðheilsu í Danmörku. Nordea sjóðurinn leggur fram 100 milljónir danskra króna í verkefnið sem nefnst OPUS og verður unnið hjá Hafnarháskóla.
Rannsóknaverkefnið mun fjalla sérstaklega um heilsu og velferð barna. Eitt af markmiðunum er að búa til uppskrift að máltíðum úr norrænu hráefni fyrir skóla og barnafjölskyldur.
Áætlun Norrænu ráðherranefndarinnar um nýja norræna matargerðarlist var ýtt úr vör haustið 2006. Markmið hennar að hvetja norræna matreiðslumenn til dáða , nýta norrænt hráefni betur og bæta heilsu Norðurlandabúa.
Það er ánægjulegt að norrænt frumkvæði okkar hafi áhrif á verkefnum í þjóðlöndunum, segir Halldór Ásgrímsson framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar um dönsku áætlunina.
Eva Kjer Hansen, ráðherra matvæla í Danmörku, er ánægð með styrkinn frá Nordea og að fjármagn frá einkaaðilum skuli varið til að auka gæði í matvælaframleiðslu. Eva Kjer Hansen hefur sjálf ýtt úr vör sinni eigin áætlun Smag Danmark þar sem einnig er tekið mið af áætluninni um nýja norræna matargerðarlist.
Ég tel styrk Nordea til Kaupmannahafnarháskóla styrkja aðgerðir okkar á Norðurlöndum og einnig það sem gert hefur verið í hverju landi fyrir sig. Ég vona að styrkurinn verði til þess að fleiri fyrirtæki og einstaklingar á Norðurlöndum leggi sitt af mörkum. Það myndi efla og auka framleiðslu á gæðamatvælum, segir ráðherrann.
Matargerðarfrumkvöðullinn Claus Meyer, sem á sæti í stjórnarhópi áætlunarinnar um nýja norræna matargerðarlist, er einn af þeim sem stendur að OPUS verkefninu. Meyer leggur áherslu á að Ný norræn matargerðarlist hafi haft sitt að segja og vakið athygli og ánægju.
Stuðningur danskra og norrænna ráðherra hefur skipt sköpum. Án hans hefði Nordea sjóðurinn trúlega ekki styrkt OPUS verkefnið, sagði Meyer.
Norræna ráðherranefndin, hefur einnig átt frumkvæði að fleiri áætlunum sem hvetja til bættrar heilsu og heilbrigðara lífernis. Dæmi um það er áætlun um næringu og hreyfingu fyrir börn og unglinga.
Greint frá á heimasíðu Norðurlandaráði
Fleira tengt efni:
Norræn matargerð verðlaunuð
Nánar um OPUS verkefnið: http://www.foodoflife.dk/Opus.aspx
Ný norræn matargerðarlist: http://www.nynordiskmad.org/
Mynd: caterersearch
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanÍslenskur matreiðslumaður fær Michelin-viðurkenningu fyrir nýjan veitingastað í Vilníus
-
Keppni3 dagar síðanFagfólk skaraði fram úr í árlegri tertukeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffis
-
Markaðurinn3 dagar síðanEftirrétturinn sem kaffiunnendur hafa beðið eftir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu
-
Frétt3 dagar síðanEiturþörungar dafna vel í sjónum, varað við kræklingatínslu
-
Frétt5 dagar síðanMatvælasjóður hefur veitt 3,7 milljarða í styrki frá 2020
-
Markaðurinn2 dagar síðanLaus störf í eldhúsi á fjögurra stjörnu hóteli við Öræfajökul
-
Markaðurinn2 dagar síðanÍslandshótel leita að hótelstjóra fyrir Hótel Reykjavík Askja



