Markaðurinn
Nú getur þú reykt kjöt, fisk og osta á veitingastaðnum eða heima hjá þér á einfaldan hátt – Klárlega jólagjöfin í ár
Ef þú ert að leita að einfaldari og áhrifaríkari leið til að útbúa hefðbundna reykta vöru, t.a.m. pylsur, kjöt, fisk, villibráð eða jafnvel osta, þá er lausnin hér.
Vandaðir og vel hannaðir reykgjafar úr blikki og ryðfríu stáli, sem eru að ryðja sér braut um allan heim, eru nú til sölu hér á Íslandi og kosta: blikk 42.000 kr. og ryðfrír 49.900 kr. með vsk.
Stjórntækin á reykgjafanum eru mjög einföld, hitastigið er einfaldlega stillt og reykofninn sér um allt ferlið, þá bæði heit-, og kaldreykingu. Tímalengd fer eftir því hvað er verið að reykja, en hægt er að reykja í allt að 8 klukkustundir án þess að fylla á reykgjafann.
Reykgjafann er hægt að festa utan á eða inní hvaða skáp eða kassa/tunnu sem er.
„Frábært tæki, einfalt, afkastamikið og öruggt“
Segir Bjarni Óskarsson innflytjandi reykgjafanna í samtali við veitingageirinn.is, en Bjarni hefur bæði heit- og kaldreykt sem og selt vörurnar við góðan orðstír.
Bjarni er eigandi Nings og rekur lífrænan búskap og ræktun á jörð sinni að Völlum í Svarfaðardal ásamt eiginkonu sinni Hrafnhildi Ingimarsdóttir, en þar selja þau sælkeravörurnar sem þau framleiða fyrir Litlu Sveitabúðina.
Hafðu samband
Allar upplýsingar veitir Bjarni Óskarsson í síma 8228844 eða á netfangið [email protected]
Hægt er að panta allar vörur hjá Bjarna á www.vellir.is eða facebook hér.
Einnig er hægt að fá mikið úrval af mismunandi viðarspænum, eplum, kirsuberjum, birki, o.fl.
„Ostarnir, bleikjan og gæsin eru vinsælust“
segir Bjarni að lokum, aðspurður um vinsælustu reyktu vörurnar í búðinni.
Kynningarmyndband
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn2 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Keppni2 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Markaðurinn1 dagur síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn3 dagar síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins
-
Markaðurinn22 klukkustundir síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði







