Markaðurinn
Námskeið í eftirréttum með landsliðskokknum Ólöfu Ólafsdóttur
Markmið námskeiðsins er að þjálfa aðferðir og vinnubrögð við eftirrétti og dessert kökur. Áhersla verður lögð á að ná góðri færni þar sem meðal annars verður farið í:
- temprun á súkkulaði
- súkkulaðiskrau gerð mismunandi tegunda á mús
- gljá/hjúpun að eftirréttum og litlum kökum
- samsetningu eftirrétta á disk
Námskeiðið er kennt þrjá daga í röð og er stærsti hluti þess verklegur en þar er þátttakendum skipt í hópa, þrír í hverjum þar sem hver hópur gerir einn eftirrétt og eina köku – fernt af hvoru.
Leiðbeinandi er Ólöf Ólafsdóttir, einn fremsti eftirréttakokkur landsins. Ólöf útskrifaðist sem Konditor frá ZBC Ringsted í Danmörk árið 2021 og sama ár bar hún sigur úr býtum í keppni um eftirrétt ársins.
Ólöf fór með íslenska kokkalandsliðinu á Ólympíuleikana í Stuttgart í febrúar síðastliðnum þar sem liðið hlaut tvenn gullverðlaun og hafnaði í þriðja sæti samanlagt. Er það besti árangur kokkalandsliðsins frá upphafi.
Í dag starfar Ólöf sem eftirréttakokkur á veitingastaðnum Monkeys.
Ólöf gaf út bókina „Ómótstæðilegir eftirréttir“ árið 2023 og fá þátttakendur eintak af bókinni að gjöf í lok námskeiðs.
HVAR OG HVENÆR
| DAGSETNING | KENNT | FRÁ | TIL | STAÐSETNING |
|---|---|---|---|---|
| 05.11.2024 | þri. | 14:00 | 18:00 | Hús fagfélagan Stórhöfða 31. jarðhæð í vesturenda. Eldhús. |
| 06.11.2024 | mið. | 14:00 | 18:00 | Hús fagfélagan Stórhöfða 31. jarðhæð í vesturenda. Eldhús. |
| 07.11.2024 | fim. | 14:00 | 18:00 | Hús fagfélagan Stórhöfða 31. jarðhæð í vesturenda. Eldhús. |
Hefst 5. nóv. kl: 14:00
- Lengd: 12 klukkustundir
- Kennari: Ólöf Ólafsdóttir
- Staðsetning: Hús fagfélagan Stórhöfða 31. jarðhæð í vesturenda. Eldhús.
- Fullt verð: 60.000 kr.-
- Verð til aðila IÐUNNAR: 18.000 kr.-
- Tengiliður: Valdís Axfjörð Snorradóttir [email protected]
-
Markaðurinn6 dagar síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Markaðurinn6 dagar síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Keppni3 dagar síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Markaðurinn2 dagar síðanInnnes auglýsir spennandi sölustarf
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanSkúrinn í Stykkishólmi stefnir á lokun eftir 11 ára rekstur
-
Markaðurinn2 dagar síðanNýjar íslenskar kartöflur vekja alltaf eftirvæntingu




