Smári Valtýr Sæbjörnsson
Myndir frá árshátíð Klúbbs Matreiðslumeistara
Árshátíð Klúbbs Matreiðslumeistara var haldin á Hilton Hótel, laugardaginn 18. mars s.l. og var margt um manninn. Þéttskipuð dagskrá var hjá félagsmönnum þar sem aðalfundur var haldinn sama dag.
Ný stjórn var kosin fyrir tímabilið 2017 til 2018:
- Björn Bragi Bragason, forseti
- Friðgeir Ingi Eiríksson, varaforseti
- Andreas Jacobsen, gjaldkeri
- Árni Þór Arnórsson, ritari
- Ylfa Helgadóttir, meðstjórnandi
- Jóhann Sveinsson, meðstjórnandi
- Ragnar Marínó Kristjánsson, meðstjórnandi
- Logi Brynjarsson, varamaður
Einnig var skipað í nefndir á aðalfundinum og eru þær sem hér segja.

Rapparinn og ofurtöffarinn Erpur Eyvindarson var veislustjóri og sló rækilega í gegn, eins og búast mátti við
Það er mál manna að árshátíðin hafi verið einstaklega vel heppnuð þetta árið og eiga allir þeir fjölmörgu sem að henni komu, á einn eða annan hátt, hrós skilið.
4ja rétta matseðill var á boðstólnum en það var snillingurinn Fannar Vernharðsson yfirmatreiðslumaður Vox ásamt sínu fólki sem töfraði fram hvern réttinn af öðrum sem hér segir:
- Urriði
Grafinn og létteldaður Urriði, rauðrófum, laxahrogn & yuzu majónes - Lifur og læri
Andalifur & læri sveppir, ber & Brioche brauð - Naut
Hægelduð nautalund & grísasíða ásamt gleymdum gulrótum, sveppum, perlulauk & portvínssósu - Súkkulaði
Karamellu- & súkkulaðimús, hvítsúkkulaði & marengs
Orðu og laganefnd klúbbsins hafði í nógu að snúast á árshátíðinni. Meðlimir og aðstoðarmenn í Kokkalandsliðinu fengu viðurkenningar og medalíur fyrir frábæran árangur á Ólympíuleikunum en liðið hlaut fern verðlaun.
Iðunn Sigurðardóttir og Karl Óskar Smárason fengu pönnurnar frægu fyrir titilinn Matreiðslunemi ársins.
- Jóhann Sveinsson
- Júlía Skarphéðinsdóttir
Júlía Skarphéðinsdóttir og Jóhann Sveinsson voru heiðruð með Cordon Bleu orðuna. Orðan er veitt meðlimum fyrir vel unnin störf hjá Klúbbi Matreiðslumeistara og aðild í að lyfta faginu til virðingar og viðhalda góðum hefðum.
Að sjálfsögðu var happdrættið á sínum stað og var stútfullt herbergi af vinningum í pottinum, en hægt er að skoða vinningana með því að smella hér.
Myndir tók Þorgeir Ólafsson
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanÍslenskur matreiðslumaður fær Michelin-viðurkenningu fyrir nýjan veitingastað í Vilníus
-
Keppni4 dagar síðanFagfólk skaraði fram úr í árlegri tertukeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffis
-
Markaðurinn4 dagar síðanEftirrétturinn sem kaffiunnendur hafa beðið eftir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu
-
Frétt4 dagar síðanEiturþörungar dafna vel í sjónum, varað við kræklingatínslu
-
Frétt6 dagar síðanMatvælasjóður hefur veitt 3,7 milljarða í styrki frá 2020
-
Markaðurinn3 dagar síðanLaus störf í eldhúsi á fjögurra stjörnu hóteli við Öræfajökul
-
Markaðurinn3 dagar síðanÍslandshótel leita að hótelstjóra fyrir Hótel Reykjavík Askja











































































































