Vertu memm

Bocuse d´Or

Myndasyrpa. Snædís skilar sínum fyrsta rétti til dómara

Birting:

þann

Myndasyrpa. Snædís skilar sínum fyrsta rétti til dómara - Bocuse d´Or 2026

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir hefur nú skilað Miðjarðarhafsréttinum í keppninni Bocuse d’Or Europe 2026 sem fram fer í Marseille í Frakklandi. Þar leiðir hún íslenska liðið sem kandídat Íslands í einni virtustu matreiðslukeppni Evrópu.

Rétturinn ber heitið Where the Mountain Meets the Sea og er túlkun Snædísar á Miðjarðarhafsþema keppninnar. Þar sameinar hún hráefni úr sjó og landi í framsetningu sem endurspeglar bæði hugmyndafræði liðsins og tengsl Íslands við náttúruna.

Í keppninni þurfa kokkarnir að takast á við tvö verkefni. Annars vegar svokallað „On Stage“ þema þar sem Snædís lagði fram réttinn Warm langoustine aioli with Icelandic wasabi. Hins vegar verkefnið sem borið er fram á stóru keppnisfati þar sem þemað hjá íslenska liðinu ber heitið She Wears the Sea in Silver. Þar er sótt innblástur í íslenska þjóðbúning kvenna og tengsl hans við hafið.

Nú tekur við næsti áfangi keppninnar þar sem Snædís hefur 45 mínútur til að ljúka stóra keppnisfatinu sem verður lagt fyrir dómnefnd.

Á fatinu þurfa keppendur að útbúa fjórtán skammta þar sem ákveðin hráefni eru í aðalhlutverki. Þar má nefna rauðan gurnard-fisk, litla fjólubláa ætiþistla, kjúklingabaunir og ígulker.

Snædís og teymið hennar hafa undirbúið þátttökuna í marga mánuði og fylgjast margir spenntir með framgöngu íslenska liðsins í keppninni. Veitingageirinn.is heldur áfram að fylgjast með gangi mála í Marseille og flytur lesendum fréttir af því helsta sem gerist hjá íslenska liðinu.

Myndir: Bocusedor.com

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið