Freisting
Myndasafn: Hvar voru íslensku kokkarnir?

Matreiðslufréttamaðurinn Robert Makłowicz frá Póllandi hélt smá tölu á Grandhótel föstudaginn 1. maí síðastliðin, ekki voru margir Íslendingar mættir og mátti telja þá á fingrum annarar handar (undirritaður sjálfur, Gissur Guðmundusson WACS og Helgi Einarsson WACS. Fannst okkur frekar léleg mæting úr bransanum og undarlegt að KM félagar láti ekki sjá sig!? En þessi viðburður var auglýstur m.a. á freisting.is og víðar.
Robert Makołwicz er mikilsmetinn í heimalandinu og eftir hann eru nokkrar þjóðernis/sögu-matreiðslubækur og sú nýjasta frá 2007 sem fjallar um fusion-matreiðslu milli hefðabundina pólskra rétta eldaða undir áhrifum frá Mið-Asíu, Suður-Ameríku og Ástralíu. Skemmtileg pæling þarna á ferð að kynnast þjóðum heims í gegnum matinn og söguna.
Ræddi hann um hefðbunda pólska matreiðslu sem er undir áhrifum frá Þýskalandi, gamla Rússlandi og Baltanlöndunum og þau grunnhráefni sem eru í hana eru notuð, grísakjöt, mikið af villtum dýrum, villta skógar-sveppi, kryddjurtir og svo auðvitað pólsku pylsurnar með grófum grísabógsbitum, miklum hvítlauk og síðan auðvitað reyktar!
Einnig var komið inná Bison uxa en þar eru á ferð uxar sem éta þetta fræga gras sem einnig er lagað Bison-Vodka (Żubrówka) sem þarna var að boðstólnum í eplasafa sem á pólsku nefnist szarlotka (sjá mynd í meðfylgjandi myndasafni) en þetta er vandað vodka infusað með grasi, sem vex á svæði við landamæri Póllands og Hvíta Rússlands, sem gefur magnað bragð og þetta vín er mikið notað í pólska matreiðslu. Skemmtilegur karl þarna á ferð og greinilega hafsjór af fróðleik sem hann hefur tekið saman í þáttunum sínum!
Þátturinn sem hann stýrir er sýndur á pólska ríkissjónvarpinu rás 2 með 1,5 til 2 miljónir áhorfenda í viku hverri! Þátturinn nefnis Robert Makłowicz’s Culinary Travels og er sýndur 1x í viku og tekur hann fyrir eitt land eða eina uppskrift í hverjum þætti. Áhugavert efni og á fundinum var tekið upp smá skot fyrir þáttinn (sem sýndur verður í ágúst skildist mér) og verðum gaman að sjá það.
Látum myndirnar tala sínu máli:
http://www.freisting.is/myndagalleri/public.asp?public_user=1
/ Almennar myndir / Kokkaspjall
-
Keppni3 dagar síðanÍslenskir nemar keppa á Norrænu nemakeppninni í Svíþjóð
-
Bocuse d´Or3 dagar síðan„Ég var glaður og þakklátur fyrir að vera partur af þessu teymi“ segir Jakob Árni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanNýlegur veitingastaður og aukin áhersla á heildarupplifun hjá Bragðlaukum
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanNýr bjór þróaður með íslensku pylsuna í huga
-
Starfsmannavelta2 dagar síðanLamb Street Food og Mat Bar hætta rekstri
-
Markaðurinn3 dagar síðanLærðu að fanga augnablikið: Myndagerð fyrir samfélagsmiðla í veitingageiranum
-
Markaðurinn3 dagar síðanNámskeið: Ægir Friðriksson matreiðslumaður kennir flökun á fiski
-
Frétt2 dagar síðanSmash Style hamborgarar innkallaðir vegna salmonellu



