Freisting
Magnús Scheving undirbýr að opna veitingahúsakeðju undir merkjum Latabæjar

Tarantino elskar Latabæ! Þetta er fyrirsögnin á löngu viðtali, sem birtist við Magnús Scheving í breska götusölublaðinu News of the World um helgina. Blaðið sérhæfir sig í æsifréttum en viðtalið við Magnús er ekki af því taginu. Þar kemur m.a. fram að Magnús er að undirbúa að opna veitingahúsakeðju undir merkjum Latabæjar þar sem fjölskyldur geta snætt hollan mat.
Magnús er spurður í viðtalinu hvort það sé rétt, að bandaríski leikstjórinn Quentin Tarantino sé aðdáandi Latabæjar og hafi heimsótt upptökuverið þar sem þættirnir eru teknir upp. Magnús segir, að Tarantino elski kung-fu kvikmyndir og hafi orðið óður og uppvægur þegar hann frétti, að verið væri að framleiða barnaþætti þar sem notaðar væru æfingar ættaðar úr þeirri sjálfsvarnarlist. Það var frábært að hitta hann,“ segir Magnús. Quenten, þú ert með símanúmerið mitt.“
Verið er að setja upp leiksýningu byggða á Latabæ, í Edinborg.
Af vef Mbl.is | /Smári
-
Markaðurinn6 dagar síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Markaðurinn6 dagar síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Keppni2 dagar síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanSkúrinn í Stykkishólmi stefnir á lokun eftir 11 ára rekstur
-
Markaðurinn2 dagar síðanInnnes auglýsir spennandi sölustarf
-
Frétt4 dagar síðanVeitingastaðir gætu sótt meiri tekjur í ís yfir veturinn


