Markaðurinn
Lúxusbollur með vanillukremi og jarðarberjum
Besti dagur ársins framundan og þá er ekki úr vegi að prófa dásamlegar rjómabollur og dunda svolítið við samsetninguna til að fá hina fullkomnu bollu.
Hér er um að ræða klassíska vatnsdeigsbollu sem er fyllt með himnesku vanillukremi, rjóma og ferskum jarðarberjum og toppuð með ekta súkkulaðiganache. Ég ætla ekkert að spara yfirlýsingarnar og segi og skrifa þetta bestu rjómabollu sem ég hef smakkað.
Svo nú er ekkert annað að gera en að prófa.
Vatnsdeigsbollur:
300 ml vatn
100 gr smjör
1 msk sykur
150 gr hveiti
4 egg (pískuð)
Aðferð:
- Ofn hitaður í 190 gráður með blæstri. Setjið vatn, sykur og smjör í pott við meðalhita og hleypið suðunni upp, sjóðið þar til smjörið bráðnar.
- Með pottinn ennþá á heitri hellunni – hellið hveitinu saman við vökvann og hrærið kröftuglega með sleif þar til það myndast myndarleg, slétt deigkúla og deigið losnar alveg frá köntunum.
- Færið deigið yfir í hrærivélaskál og leyfið mesta hitanum að rjúka úr, í u.þ.b. 10 mínútur. Gott að hræra aðeins í deiginu til að flýta fyrir kólnun.
- Pískið eggjunum saman í skál eða könnu. Kveikið á hrærivélinni og hellið eggjablöndunni hægt og rólega saman við deigið og hrærið vel inn á milli. Ef eggin eru mjög stór þarf kannski ekki að nota þau öll. Deigið á að vera glansandi og ekki of þunnt. Gott viðmið er að þegar sleif er stungið í deigið og lyft upp myndar deigið V sem lekur samt ekki af sleifinni heldur hangir.
- Deiginu sprautað eða sett með skeið á plötu (magn af deigi í hverja er bollu u.þ.b. 1 msk) bakið í 22 mínútur. Þessi uppskrift gefur um 15 meðalstórar bollur.
Vanillukrem:
250 ml rjómi frá Gott í matinn
250 ml mjólk
Fræ úr einni vanillustöng
75 gr sykur
3 msk maíssterkja (Maizena mjöl)
5 eggjarauður
3 msk kalt smjör
Aðferð:
- Mjólk, rjómi og vanilla sett saman í pott og hitað alveg upp að suðu, ekki láta sjóða.
- Sykri, maíssterkju og eggjarauðum pískað vel saman í stórri skál þar til ljóst og létt.
- Heitri mjólkinni hellt mjög rólega saman við eggin og hrært vel á meðan.
- Eggja og mjólkurblöndunni svo hellt aftur í pottinn og hitað á meðalhita upp að suðu, hrært í allan tímann.
- Þegar þið sjáið blönduna bubbla aðeins slökkvið undir og takið af hitanum. Hrærið köldu smjörinu saman við þar til alveg bráðnað. Hellið vanillukreminu í sigti og þrýstið í gegn með skeið þar til silkimjúkt. Setjið í skál og plastfilmu yfir þannig að filman snerti vanillukremið. Kælið alveg.
Súkkulaðiganache
150 gr gæðasúkkulaði að eigin vali
100 ml rjómi frá Gott í matinn
Aðferð:
- Saxið súkkulaðið og setjið í skál
- Hitið rjómann að suðu og hellið yfir súkkulaðið.
- Látið standa í 2-3 mínútur og hrærið svo saman þar til þið eruð komin með glansandi fallegt súkkulaðikrem.
Samsetning:
500 ml rjómi frá Gott í matinn, þeyttur.
Fersk jarðarber
Skerið vatnsdeigsbollu í tvennt. Fyllið botninn með 1 msk af vanillukremi. Setjið fersk jarðarber þar ofan á og því næst þeyttan rjóma. Lokið bollunni og toppið með súkkulaðiganache.

-
Keppni3 dagar síðan
Fréttavaktin: Kokkur ársins 2025
-
Keppni3 dagar síðan
Gabríel Kristinn Bjarnason er Kokkur ársins 2025
-
Keppni3 dagar síðan
Stóra stundin runnin upp – Úrslitakeppni Kokkur ársins 2025 fer fram í dag – Myndaveisla frá forkeppni Kokkur ársins og Grænmetiskokkur ársins
-
Keppni4 dagar síðan
Fréttavaktin: Grænmetiskokkur ársins 2025
-
Keppni3 dagar síðan
Andrés Björgvinsson er Gænmetiskokkur ársins 2025
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Gefðu hlutunum nýtt líf – skoðaðu úrvalið hjá Efnisveitunni
-
Frétt12 klukkustundir síðan
Kaffisala bönnuð eftir kl. 14 – Nýjar reglur um koffín á veitingastöðum
-
Keppni4 dagar síðan
Keppninni Grænmetiskokkur ársins 2025 lokið – Úrslit kynnt í Bjórgarðinum á morgun