Vertu memm

Keppni

Kokkalandsliðið: eitt gull og eitt silfur skila Íslandi 6. sæti

Birting:

þann

Heimsmeistaramótið í matreiðslu í Lúxemborg 2022 - Kokkalandsliðið

Kokkalandsliðið frá Sviss fagnar sigrinum vel og innilega

Heimsmeistaramótinu í matreiðslu í Lúxemborg lauk núna eftir hádegi í dag með verðlauna afhendingum.  Sviss tók fyrsta sætið með 93.01 stig, Svíar í öðru sæti með 90.26 og Norðmenn höfnuðu í því þriðja með 90.13.

Íslenska kokkalandsliðið keppti í tveimur keppnisgreinum og hafnaði í 6 sæti heilt yfir með 88,86.

Heimsmeistaramótið í matreiðslu í Lúxemborg 2022 - Kokkalandsliðið

Íslenska Kokkalandsliðið

Landsliðið keppti á laugardaginn í þriggja rétt heitum matseðli en í þeirri grein endaði Ísland í þriðja sæti með gull árangur.  Seinni keppnisdagurinn var svo á þriðjudaginn þegar keppt var í þrettán rétta „fine-dining“ máltíð fyr­ir 12 manns, svokölluðu „Chef’s Table” en þar hafnaði Ísland í 6. sætinu með silfur árangur. Það var samanlagður árangur þessara tveggja greina sem skilaði Íslenska liðinu 6. sætinu heilt yfir í mótinu.

„Við stefndum ofar en ef við skoðum stiga töfluna þá er þetta hníf jafnt þarna efst, enda er þetta heimsmeistarakeppni best að gleyma því ekki.

Við eru þakklát með þennan árangur það hafa allir lagt mjög mikið á sig og þetta er búin að vera löng og ströng vegferð frá því að við byrjuðum að undirbúa okkur fyrir um það bil tveimur árum.”

Sagði Þórir Erlingsson forseti Klúbbs matreiðslumeistara í lok dags.

“Þetta hefði ekki verið hægt án framlags ótrúlega margra í kringum þennan flotta hóp og alls ekki án bakhjarlanna okkar og við erum þeim afar þakklát og ef ég fæ að nota tækifærið og þakka Garra, Ásbirni Ólafssyni, Íslandsstofu, Mjólkursamsölunni og öðrum sem hafa lag okkur lið fyrir þeirra öfluga liðsstyrk.”

Næsta verkefni íslenska liðsins eru Ólympíuleikarnir í Stuttgart sem fara fram í febrúar 2024.

Heimsmeistaramótið í matreiðslu í Lúxemborg 2022 - Kokkalandsliðið

Íslenska Kokkalandsliðið

Keppn­ismat­reiðsla er í raun­inni frá­drátt­ar­keppni og er fyrirkomulagið þannig að það byrja all­ir með 100 stig sem lækk­ar síðan með til­liti til snyrti­mennsku, fag­mennsku, út­lits rétta og bragðs. Gull­frammistaða er yfir 90 stig, silf­urframmistaða milli 80 og 90 stig og brons milli 70 og 80 stig. Á mót­inu í ár eru um 20 lönd með keppnisrétt.

Kokkalandsliðið flýgur heim til Íslands á morgun föstudag.

Veisluþjónusta - Banner

Myndir sem fylgja eru frá athöfninni í dag eru teknar af Brynju Kr. Thorlacius

Heildarstig allra landa er hægt að skoða með því að smella hér.

Íslenska kokkalandsliðið skipa:

Þjálfari:
Ari Þór Gunnarsson Fastus

Fyrirliði:
Sindri Guðbrandur Sigurðsson veitingastaðnum Héðinn Kitchen Bar

Aron Gísli Helgason, veitingastaðnum Héðinn Kitchen Bar
Gabríel Kristinn Bjarnason, veitingastaðnum Héðni Kitchen Bar
Ísak Darri Þorsteinsson, veitingastaðnum Tides
Erla Þóra Bergmann, Pálmadóttir veitingastaðnum Fjallkonan
Jakob Zarioh S. Baldvinsson, veitingastaðnum Sumac
Sveinn Steinsson, Eflu verkfræðistofu
Ísak Aron Jóhansson, Lux Veitingum
Chidapha Kruasaeng, Mosfellsbakarí og HR Konfekt
Ívar Kjartansson, veisluþjónustunni Rétturinum

Aþena Þöll Gunnarsdóttir, veitingastaðnum Fiskfélaginu
Hringur Oddsson, veitingastaðnum Tides
Marteinn Rastrick, Lux Veitingum

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið