Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Kjötkompaní opnar nýja búð út á Granda – Sigurður Bjarkason framreiðslumaður í nýtt ævintýri
Kjötkompaní opnaði nýja búð út á Granda í gær og er hún glæsileg eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Stútfull búð af girnilegum vörum nautasteikur, lambakjötsréttir, Nautalund Wellington fyrir jólin, kartöfluréttir, fjölmargir smáréttir, súpur og forréttir að auki eftirréttir. Sælkerakokkar í Reykjavík ættu að gleðjast yfir nýju búðinni út á Granda en Kjötkompaní hefur einungis verið í Hafnarfirði fram að þessu. Verslunin er staðsett þar sem Matarbúrið var áður til húsa sem bauð upp á allar vörur sem framleiddar eru á býlinu Hálsi í Kjós, en þau Þórarinn Jónsson og Lisa Boije frá Hálsi í Kjós opnuðu Matarbúrið á Grandagarði í ágúst 2015 og lokuðu versluninni 21. október s.l.
Kjötkompaní ehf. var stofnað í september árið 2009, við Dalshraun 13 í Hafnarfirði. Eigandi Kjötkompaní er Jón Örn Stefánsson matreiðslumaður. Leitast er við að vera með allra ferskasta hráefni sem í boði er hverju sinni.

„Ný ævintýri“ skrifar Sigurður við þessa mynd sem hann birtir á facebook.
Sigurður Bjarkason er framreiðslumaður að mennt, en hann hefur hafið störf hjá Kjötkompaníinu í Hafnarfirði. Sigurður starfaði áður sem sölustjóri hjá Mekka Wine Spirit.
Mynd: úr einkasafni Sigurðar og birt hér með góðfúslegu leyfi hans.
Hjá Kjötkompaní starfa fagmenn bakvið borðið þar sem sérstök áhersla er lögð á gæði og vönduð vinnubrögð. Kjötkompaní er vel tengt framleiðendum og í mörugum tilvikum er verið að versla beint frá bónda. Í vöruúrvali Kjötkompaní er leitast við að uppfylla heildarlausnir í matarinnkaupum viðskiptavinarins.
Myndir: facebook / Kjötkompaní
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanFimm fagmenn, eitt kvöld og einstök matarupplifun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanTveir þekktir matreiðslumeistarar ganga til liðs við Múlakaffi
-
Frétt5 dagar síðanAftur greinist salmonella í nautahakki
-
Markaðurinn5 dagar síðanNý Heinz ChefsBottle hönnuð af kokkum fyrir kokka
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanDiskósúpa og fræðsla í forgrunni í átaki gegn matarsóun
-
Markaðurinn4 dagar síðanGamla góða draumtertan sem klikkar aldrei
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanÍslensk matargerð í sviðsljósinu í Barcelona
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanBransa kvöld á Sumac á sunnudag









