Frétt
Fagmenn veitingageirans með snörp skilaboð til sauðfjárbænda

Fanney Dóra Sigurjónsdóttir matreiðslumaður vill að framleiðendur og matreiðslufólk spyrji sig hvernig þeir eru að nýta vöruna sem þeir eru með í höndunum.
„Markaðurinn er alls ekki mettaður“
segir Jón Örn Stefánsson matreiðslumaður og eigandi Kjötkompaní sem telur fullt pláss í viðbót fyrir aukna sölu á lambakjöti á íslenskum markaði.
Þetta kemur fram í fjórða þætti „Lambs og þjóðar“, en í þættinum er fjallað um markaðsmál lambakjöts og rætt við aðila sem selja og framreiða lambakjötið, m.a. í sérvöruverslunum og á veitingastöðum, að því er fram kemur á vef Bændablaðsins.
Fanney Dóra Sigurjónsdóttir matreiðslumaður gerir út á sérstöðu kjötsins. Hún vill að framleiðendur og matreiðslufólk spyrji sig hvernig þeir eru að nýta vöruna sem þeir eru með í höndunum. Þórarinn Ævarsson bakari og framkvæmdastjóri IKEA, vill gera vöruna aðgengilegri og þróa af meiri krafti. Hann segir frá því þegar IKEA hóf að selja skanka fyrir nokkrum árum síðan en þeir hafi verið talin „vandræðavara“ sem illa hefði gengið að selja.
Nú sé hins vegar eftirspurnin mikil og í dag sé slegist um þessa bita á markaðnum. Þórinn myndi vilja sjá meiri sérhæfingu hjá sláturhúsunum og tekur sem dæmi um það hvernig lítil brugghús hafi slegið í gegn um allt land. Hann fullyrðir að sömu leið sé hægt að fara með markaðssetningu á lambakjöti.
Ólafur Helgi Kristjánsson, matreiðslumeistari á Hótel Sögu, segir mikilvægt að geta sagt söguna á bakvið vöruna, og það getum við svo sannarlega. Það kunni ferðamenn vel að meta. Rita Didriksen, eigandi Lamb Street Food, segir að lambakjötið sé vara á uppleið og þakkar það meðal annars áherslum í markaðsstarfi síðustu ára.
Þætti „Lambs og þjóðar“ er hægt að horfa á hér að neðan:
4. þáttur
3. þáttur
2. þáttur
1. þáttur
Mynd: skjáskot úr myndbandi
-
Markaðurinn6 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn6 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Keppni2 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn7 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Keppni5 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt3 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Nemendur & nemakeppni4 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði



