Frétt
Dagleg ostneysla tengist lægri áhættu á heilabilun
Ný rannsókn bendir til þess að neysla á feitum osti geti tengst minni líkum á heilabilun meðal eldra fólks. Greint er frá niðurstöðunum í nýjasta tölublaði Bændablaðsins þar sem fjallað er um rannsókn sem unnin var við Háskólann í Lundi í Svíþjóð.
Rannsóknin var leidd af Emily Sonestedt, lektor í faraldsfræði, og samstarfsfólki hennar. Markmið hennar var að kanna hvort neysla á feitum osti hefði áhrif á líkur á heilabilun síðar á ævinni. Fylgst var með tæplega 28 þúsund einstaklingum í allt að 25 ár. Meðalaldur þátttakenda við upphaf rannsóknarinnar var 58 ár og á rannsóknartímanum greindust 3.208 þeirra með heilabilun.
Að teknu tilliti til lífsstílsþátta á borð við hreyfingu, matarvenjur, reykingar og áfengisneyslu kom í ljós að þeir sem neyttu að jafnaði 50 gramma af feitum osti á dag voru 13 prósent ólíklegri til að greinast með heilabilun en þeir sem borðuðu minna en 15 grömm á dag. Feitur ostur var í þessu samhengi skilgreindur sem ostur með meira en 20 prósent fitu.
Þá bentu gögnin einnig til neikvæðrar fylgni milli rjómaneyslu og heilabilunar. Á hinn bóginn virtust mjólkurvörur með lágu fituinnihaldi ekki hafa sömu verndandi áhrif á heilsu heilans.
Fjórðungur þátttakenda borðaði meira en 50 grömm af feitum osti á dag. Í umfjöllun á vef Háskólans í Lundi kemur fram að þegar litið var til tiltekinna tegunda heilabilunar mældust allt að 29 prósent minni líkur á æðatengdri heilabilun hjá þeim sem neyttu meira af feitum osti. Einnig virtist aukin ostneysla tengjast minni líkum á Alzheimer-sjúkdómi hjá þeim sem báru ekki APOE e4 genabreytinguna, sem talin er áhættuþáttur sjúkdómsins.
Í umfjölluninni er skýrt tekið fram að rannsóknin leiði ekki í ljós orsök heldur tengsl. Þær gefa þó tilefni til frekari rannsókna á hlutverki fituríkra mjólkurvara í mataræði eldra fólks og mögulegum áhrifum þeirra á heilsu heilans.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanÍslenskur matreiðslumaður fær Michelin-viðurkenningu fyrir nýjan veitingastað í Vilníus
-
Keppni2 dagar síðanFagfólk skaraði fram úr í árlegri tertukeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffis
-
Markaðurinn3 dagar síðanEftirrétturinn sem kaffiunnendur hafa beðið eftir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanTrump í vínstríði við dyggan stuðningsmann
-
Frétt3 dagar síðanEiturþörungar dafna vel í sjónum, varað við kræklingatínslu
-
Frétt4 dagar síðanMatvælasjóður hefur veitt 3,7 milljarða í styrki frá 2020
-
Markaðurinn2 dagar síðanLaus störf í eldhúsi á fjögurra stjörnu hóteli við Öræfajökul



