Frétt
Keahótel ehf. kaupir Hótel Kötlu
Keahótel ehf. hefur gengið frá kaupum á Hótel Kötlu við Vík í Mýrdal, hótelið verður áfram rekið undir sama nafni og mun reksturinn að mestu leyti haldast óbreyttur.
Hótel Katla er þriggja stjörnu heilsárshótel með 103 herbergi ásamt veitingastað sem tekur allt að 200 manns í sæti. Hótelið stendur í landi Höfðabrekku sem er í 5 km fjarlægð frá Vík í Mýrdal. Í landi Höfðabrekku er einstök náttúrufegurð og hefur það verið nýtt sem sviðsmynd í ótal kvikmyndaverkefni og sjónvarpsþætti s.s. Game of Thrones og Hrafninn Flýgur.
Svæðið í kringum Vík í Mýrdal er meðal vinsælustu ferðamannastaða landsins og hefur mikil uppbygging átt sér stað á svæðinu síðustu ár.
„Hótel Katla er einstaklega vel staðsett í fallegu umhverfi og sjáum við mikla möguleika til frekari uppbyggingar á svæðinu“
segir Páll L. Sigurjónsson framkvæmdastjóri Keahótela ehf.
Hótel Katla verður tíunda hótelið sem rekið verður undir merkjum Keahótela, en fyrir rekur það sex hótel í Reykjavík og þrjú á Norðurlandi með samtals 794 herbergi.
Kaupin eru frágengin og er kaupverðið trúnaðarmál.
Mynd: aðsend
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Markaðurinn7 dagar síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Frétt6 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun18 klukkustundir síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna
-
Markaðurinn2 dagar síðanKjarnafæði býður allt að 49% afslátt af kjötvörum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanÍslandshótel opna nýja veitingastaði á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju
-
Markaðurinn20 klukkustundir síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins




