Markaðurinn
Jóhanna stýrir sókn Dineout í Danmörku
Jóhanna Guðrún Jóhannesdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Dineout í Danmörku, en hún hefur á síðustu misserum leitt útrás hugbúnaðarfyrirtækisins þar í landi.
Starf Jóhönnu felst einna helst í því að leiða áframhaldandi vöxt, þróun og sókn á hugbúnaði fyrirtækisins í Danmörku og afla nýrra viðskiptavina á markaðnum, ásamt því að sjá um daglegan rekstur á skrifstofu Dineout þar í landi þar sem nú starfa sex manns.
Áður en Jóhanna gekk til liðs við Dineout var hún framkvæmdastjóri stafrænu markaðsstofunnar Kliq í Kaupmannahöfn, þar sem hún kom m.a. að stefnumótunarvinnu Dineout fyrir inngöngu á danskan markað.
Auk þess hefur hún reynslu af störfum tengdum markaðsmálum og viðskiptaþróun, m.a. í ferðaiðnaði. Jóhanna er með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum á Bifröst og bakkalárgráðu í alþjóðlegum sölu- og markaðsfræðum með áherslu á stjórnun frá Tækni- og viðskiptaháskólanum í Hróarskeldu.
Að auki er hún með bakgrunn í hugbúnaðar- og vefþróun frá IT háskólanum í Kaupmannahöfn.
Inga Tinna Sigurðardóttir, forstjóri Dineout:
„Það er mikill styrkur fólginn í því að fá Jóhönnu með okkur í lið enda hefur hún verið búsett í Kaupmannahöfn til fjölda ára og þekkir vel þann markað sem við hjá Dineout herjum nú á með okkar hugbúnaðarlausnir og þjónustu.
Nú þegar sjáum við staðfestan árangur af störfum Jóhönnu og hennar teymis þar sem um 50 veitingastaðir, barir og kaffihús í Kaupmannahöfn notast nú við okkar kerfi eða eru í innleiðingarfasa. Við önnum varla eftirspurn þessa dagana og hafa staðir á bæði Jótlandi og Fjóni leitað til okkar og óskað eftir lausnum Dineout sem er afar ánægjulegt.
Við hlökkum til að halda okkar vegferð áfram í Danmörku með Jóhönnu í fararbroddi.“
Jóhanna Guðrún Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Dineout í Danmörku:
„Það hefur verið ævintýri líkast að kynna Dani fyrir hugbúnaði Dineout og þeim tækifærum og kostum sem lausnunum fylgir þegar kemur að hvers kyns veitingahúsarekstri.
Danska veitingastaðaflóran hefur lengi kallað eftir þeim hugbúnaðarlausnum sem Dineout býður upp á, þá sérstaklega til að koma öllu utanumhaldi úr mörgum lausnum yfir í eitt skilvirkt heildarkerfi sem býður upp á borðabókana-, kassa- og viðburðakerfi, ásamt rafrænum gjafabréfum.
Markaðurinn er afar spenntur fyrir lausnum Dineout og hvernig hægt sé að nýta lausnirnar til að lækka kostnað, minnka flækjustig til muna og á sama tíma auka tekjur.
Ég er stolt af þeim árangri sem við höfum nú þegar náð hér í Danmörku og verður spennandi að fylgja eftir þeim gríðarmörgu tækifærum sem markaðssvæðið býður upp á.“

-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðan
Vel sóttur fundur hjá KM Norðurland á heita æfingu hjá 3. bekk í Verkmenntaskólanum á Akureyri – Myndir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
Leyndarmál atvinnukokkanna: 8 fagleg eldhúsráð sem spara tíma og fyrirhöfn
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Endurnýjaðu án þess að sprengja budduna – Skoðaðu úrvalið af notuðum tækjum fyrir veitinga- og hótelrekstur
-
Markaðurinn5 dagar síðan
Netflix-stjarnan Juan Gutiérrez mætir til Íslands – Eftirrétta og konfekt námskeið fyrir sælkerana á vegum Iðunnar Fræðsluseturs
-
Markaðurinn4 dagar síðan
La Sommeliére vínkælar í úrvali fyrir veitingahús og veislusali
-
Markaðurinn1 dagur síðan
Lúxusbrauðterta fyrir ostunnendur – dásamlega einföld
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðan
Af hverju bestu Michelin veitingastaðirnir sækja hráefni í Hiroshima? – Myndband
-
Keppni4 dagar síðan
Úrslit í kokteilkeppninni á degi heilags Patreks – Heimir sigraði með Irishman – Myndir og vídeó