Markaðurinn
„Íslenskt lambakjöt“ fær upprunavottun
Evrópusambandið hefur nýlega samþykkt umsókn Icelandic lamb um að vörumerkið „Íslenskt lambakjöt“ verði upprunavottað – en það er fyrsta íslenska landbúnaðarafurðin til að hljóta slíka vottun.
Um er að ræða vottun með tilvísun til uppruna, eða „Protected Designation Of Origin“ (PDO), og fær íslenskt lambakjöt nú að bera merki vottunarinnar í markaðssetningu, en það á að stuðla að neytendavernd, auka virði afurða og koma í veg fyrir óréttmæta viðskiptahætti.
„Íslenskt lambakjöt“, eða enska vörumerkið „Icelandic lamb“, mun þannig standa fyrir lambakjöt af hreinræktuðum íslenskum lömbum, sem eru alin og slátrað á Íslandi.
Matvælastofnun samþykkti umsókn Markaðsráðs kindakjöts í byrjun árs 2018, um að „Íslenskt lambakjöt“ yrði verndað afurðaheiti, sem er nauðsynlegt skref í átt að evrópsku vottuninni. Varð vörumerkið þar með fyrsta íslenska landbúnaðarafurðin til að hljóta slíka vernd á Íslandi. Síðan fékk íslenska lopapeysan slíka vernd og hjá Matvælastofnun liggur nú umsókn um vernd fyrir íslenskt viskí.
Hafliði Halldórsson, framkvæmdastjóri Íslensks lambakjöts, segir að Markaðsstofan Íslenskt lambakjöt hafi unnið að því undanfarin ár að fá íslenska lambakjötið skráð sem verndað afurðaheiti á Evrópumarkaði undir PDOmerkingunni, með það fyrir augum að auka virði íslenska lambakjötsins.
„Ég er ekki í nokkrum vafa um að PDOmerking muni auka virði íslenska lambakjötsins, bæði á innanlandsmarkaði og erlendis. Reynsla Evrópuþjóða hefur sýnt að vörur sem hafa PDOmerkingu seljast að meðaltali á tvöföldu útsöluverði í löndum ESB, samanborið við staðgönguvörur. Merkingarnar bæta einfaldlega samningsstöðu bænda og framleiðenda verulega í Evrópusambandinu.
Þá hafa kannanir á innanlandsmarkaði mælt að evrópsk upprunavottun geti hækkað kaup- og greiðsluvilja íslenskra neytenda umtalsvert,“
segir Hafliði.
Birtist fyrst á bbl.is 27. mars 2023
Myndir: bbl.is

-
Keppni3 dagar síðan
Þessir fimm keppa til úrslita um titilinn Kokkur ársins 2025 – Grænmetiskokkur ársins fer fram á morgun
-
Keppni4 dagar síðan
Kokkur ársins og Grænmetiskokkur ársins – Spennandi helgi framundan
-
Keppni19 klukkustundir síðan
Fréttavaktin: Kokkur ársins 2025
-
Keppni3 dagar síðan
Fréttavaktin: Forkeppni um Kokk ársins 2025
-
Keppni2 dagar síðan
Fréttavaktin: Grænmetiskokkur ársins 2025
-
Keppni9 klukkustundir síðan
Gabríel Kristinn Bjarnason er Kokkur ársins 2025
-
Keppni22 klukkustundir síðan
Stóra stundin runnin upp – Úrslitakeppni Kokkur ársins 2025 fer fram í dag – Myndaveisla frá forkeppni Kokkur ársins og Grænmetiskokkur ársins
-
Keppni3 dagar síðan
Landslið kjötiðnaðarmanna komið til Parísar – Heimsmeistaramótið framundan