Markaðurinn
Innnes hefur sölu á úrvals Iberico grísakjöti frá César Nieto
Innnes hefur hafið sölu og dreifingu á Iberico grísakjöti frá hinum virta framleiðanda César Nieto á Spáni.
Kjötið frá César Nieto er boðið á mörgum af bestu veitingastöðum heims og hafa vörur César Nieto unnið til fjölmargra verðlauna. Má þar meðal annars nefna að árið 2024 hlaut Jamón de Bellota 100% hráskinkan frá César Nieto verðlaun Great Taste, Golden Fork sem besta matvara sem framleidd er á Spáni.
César Nieto er spænskt fjölskyldufyrirtæki sem hefur ræktað Íberíusvín í yfir 100 ár og framleitt úr þeim úrvals kjötvörur í hæsta gæðaflokki. Fyrirtækið var stofnað árið 1895 og var brautryðjandi í svínarækt í Guijuleo héraði og lagði grunninn að þeim gæðastaðli sem í dag er kenndur við héraðið og fá einungis albestu vörur hina virðulegu D.O.P. Guijuelo vottun sem er elsta upprunavottun fyrir Íberíukjöt á Spáni.
Í dag er fyrirtækinu stýrt af fimmtu kynslóð Nieto fjölskyldunnar sem enn vinnur eftir hinum aldagömlu gildum fyrirtækisins sem tryggir fullkomin gæði.
César Nieto eru staðsettir í hjarta Íberíu, um það bil 1000 metrum yfir sjávarmáli á stað þar sem náttúra og loftslag skapa hinar fullkomnu aðstæður til framleiðslunnar. Í hinum víðáttumiklu eikarskógum sunnan Salamanca við rætur Sierra de Gredos ala César Nieto Íberísku svínin sín, þar sem þau ganga um frjáls og nærast á akörnum sem gefur kjötinu sína einstöku fitusprengingu og hið óviðjafnalega hnetukennda og fágaða bragð.
-
Markaðurinn6 dagar síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Markaðurinn6 dagar síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Keppni3 dagar síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Markaðurinn2 dagar síðanInnnes auglýsir spennandi sölustarf
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanSkúrinn í Stykkishólmi stefnir á lokun eftir 11 ára rekstur
-
Frétt4 dagar síðanVeitingastaðir gætu sótt meiri tekjur í ís yfir veturinn




