Smári Valtýr Sæbjörnsson
Innkalla 7 vörutegundir af tertum vegna aðskotahlutar
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur um innköllun Myllunnar á 7 vörutegundum af tertum vegna aðskotahlutar. Glerbrot fannst í kremi á einni tertu.
Innköllunin einskorðast við eftirfarandi súkkulaðitertur merktar Myllunni, Bónus, Krónunni og Hagkaupum.
- Myllu súkkulaðiterta 2 hæða (vnr 2058, strikamerki 5690568020586)
- Myllu súkkulaðiterta 3 hæða (vnr 2059, strikamerki 5690568020593)
- Bónus súkkulaðiterta 3 hæða (vnr 2013, strikamerki 5690568020135)
- Bónus Mömmudraumur (vnr 2014, strikamerki 5690568020142)
- Krónu súkkulaðitertu 2 hæða (vnr 2054, strikamerki 5690568020548)
- Krónu súkkulaðitertu 3 hæða (vnr 9528, strikamerki 5690568095287)
- Súkkulaðiterta Hagkaup 3 hæða (vnr 9535, strikamerki 5690568095355)
Best fyrir: Allar best fyrir dagsetningar til og með 29.11.2016.
Dreifing: Verslanir Bónuss, Kaupáss (Krónan, Kjarval), Samkaupa (Nettó, Strax, Úrval) og Hagkaupa um allt land, Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki og Varmahlíð, Kostur, Þín verslun, 10-11 Austurstræti, Iceland Engihjalla, Hlíðarkaup, Kauptún – kökur.
Viðskiptavinum sem hafa keypt vörurnar er bent á að hægt er að skila þeim til þeirrar verslunar þar sem þær voru keyptar eða til Myllunnar, Skeifunni 19 milli 8 og 16 alla virka daga. Frekari upplýsingar fást hjá gæðadeild Myllunnar í síma 510 2356 eða með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected].
Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd: úr safni
-
Markaðurinn6 dagar síðanEvogro ræktunarskápur hámarkar ferskleikann – nýjung hjá BVT
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanHákon Bragi seldi hlut sinn í Fæby og tekur við nýju starfi hjá ISS
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Keppni20 klukkustundir síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Markaðurinn7 dagar síðanBrauð mánaðarins með stökkri og fallegri áferð
-
Markaðurinn5 dagar síðanÞrír heimar viskís – frá Skotlandi til Japan og Taívan
-
Frétt3 dagar síðanMilljörðum varið í að bjarga krám og lífga upp á verslunargötur




