Viðtöl, örfréttir & frumraun
Gabríel Kristinn gefur út matreiðslubók – Gabríel: síðastliðin 2 ár hef ég verið að skrifa, græja og gera fyrir þessa skemmtilegu matreiðslubók….
Gabríel Kristinn Bjarnason matreiðslumaður og landsliðskokkur gefur út matreiðslubókina: „Þetta verður veisla“, sem út kemur í október. Í bókinni má finna frumlegar uppskriftir að smjöri og ídýfum, fingramat og veislupinnum, aðalréttum og eftirréttum.
Klárlega matreiðslubók fyrir þá sem vilja halda matarveislu heima og bjóða vinum og fjölskyldu heim í matarupplifun en vilja ekki hafa alltof mikið fyrir því.
Hér er kominn leiðarvísir að því hvernig má gera flottan mat úr hráefni sem meðal annars leynist inni í skápunum heima og töfra fram veislu á nýstárlegan hátt – áreynslulítið og án mikillar fyrirhafnar.
Útgefandi er Edda útgáfa.
„Síðastliðin 2 ár hef ég verið að skrifa, græja og gera fyrir þessa skemmtilegu matreiðslubók. Hönnuð fyrir fólkið sem elskar að bjóða í veislu heima en vantar nýjar framandi hugmyndir, allt frá þeyttu smjöri í aðalrétti og desserta.“
Segir Gabríel í tilkynningu á Instagram og segir að lokum:
„kemur í allar helstu verslanir um miðjan óktóber. Þetta verður veisla! Jólagjöfin í ár“
Myndir: instagram / @GabrielKristinn
-
Markaðurinn7 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn7 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn7 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni3 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Keppni3 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn4 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag








