Viðtöl, örfréttir & frumraun
Fullkomin síld á jólaborðið. Sænskir kokkar kenna handtökin
Síldarunnendur og matgæðingar geta nú tekið þátt í lifandi og fræðandi síldarnámskeiði á Síldarkaffi á Siglufirði þar sem sænsku kokkarnir Ted Karlberg og Joakim Bengtsson kenna handbrögðin á bak við hina fullkomnu marineruðu síld. Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja kynnast þessari sígiltu matargerð frá grunni, öðlast innsýn í hefðir og bragðsamsetningar og fara heim með eigið síldarúrval í glerkrukkum.
Þátttakendur fá að búa til þrjár mismunandi útfærslur af síld undir leiðsögn kokkanna. Á námskeiðinu er farið yfir hráefni, krydd, tækni og helstu aðferðir sem skapa góða útkomu. Allt hráefni og áhöld eru innifalin og hver þátttakandi fer heim með þrjár tegundir síldar sem hann útbýr sjálfur.
Námskeiðið verður haldið í dag 25. nóvember og 2. desember klukkan 18. Verðið er 9.900 krónur og hámark 15 manns geta tekið þátt í hvert skipti. Skráning fer fram í síma 467 1604 eða 865 2036 og einnig er hægt að senda póst á [email protected]
Myndir: facebook / Síldarkaffi
-
Keppni7 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn4 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar4 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Frétt3 dagar síðanKornax innkallar Kanilsnúðaköku
-
Markaðurinn2 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“










