Pistlar
Fréttir úr Hótel- og matvælaskólanum – vöntun á nemendum í framreiðslu og matreiðslu
Nokkur samdráttur varð í matvælagreinum við upphaf Covid faraldursins vegna lokunnar landsins og fækkun ferðamanna. Það leiddi af sér að nokkuð var um uppsagnir á námssamningum hjá nemendum.
Viðbrögð skólans voru þau að taka á móti fleiri nemendum sem sóttu um skólanám á haustönn 2020 og vorönn 2021 þannig að segja má að nemendum hafi ekki verið vikið frá skólanámi á þessum tíma. Það heyrir reyndar til undantekninga ef vísa þarf nemenda, sem sótt hefur um skólavist í iðnámi, frá námi í skólanum.
Eftir að höftum var aflétt og ferðamenn hófu að streyma til landsins aftur er komin upp ný staða. Mikil vöntun er á nemendum í framreiðslu og matreiðslu og hefur um langan tíma ekki verið meiri eftirspurn eftir nemendum í greinarnar. Er svo komið að margir veitingastaðir hafa sett sig í samband við áfangastjóra Hótel- og matvælaskólans og óskað eftir aðstoð við að útvega nemendur á samninga í greinunum. Þetta er nokkuð breytt staða og ástæða til að benda ungu fólki á möguleika þá sem þessi störf bjóða.
Ég las það í grein í blaði um daginn að „innviðir í iðn- og verknámi væru sprungnir“. Það er í sjálfu sér athyglisverð sýn á málin. Ég vil í því sambandi benda á að nám í matvælagreinum er iðnnám og á þetta ekki við um þær greinar og eins og fram hefur komið er vöntun á nemendum.
Að þessu sögðu þá vil ég sem áfangastjóri hótel- og matvælagreina hvetja þá sem áhuga hafa á að fara á námssamning í framreiðslu og/eða matreiðslu að hafa samband við mig á netfangið [email protected] eða í síma 5944000 og sjá hvort ég geti ekki aðstoðað við að útvega samninga í greinunum.
Baldur Sæmundsson
Áfangastjóri
Mynd: úr safni / Ljósmynd tók Ólafur Sveinn Guðmundsson
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanFimm fagmenn, eitt kvöld og einstök matarupplifun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanTveir þekktir matreiðslumeistarar ganga til liðs við Múlakaffi
-
Frétt6 dagar síðanAftur greinist salmonella í nautahakki
-
Markaðurinn6 dagar síðanNý Heinz ChefsBottle hönnuð af kokkum fyrir kokka
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanDiskósúpa og fræðsla í forgrunni í átaki gegn matarsóun
-
Markaðurinn5 dagar síðanGamla góða draumtertan sem klikkar aldrei
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanBransa kvöld á Sumac á sunnudag
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanÍslensk matargerð í sviðsljósinu í Barcelona




