Viðtöl, örfréttir & frumraun
„Fólk á að vera óhrætt og nota hugmyndaflugið, það er hægt að nýta allt….“
Nýverið tóku kokkarnir Jónas Oddur Björnsson og Ómar Stefánsson tímabundið við veitingarekstri Hannesarholts.
Jónas og Ómar leggja sig alla fram við að nota hráefni sem finnast í íslenskri náttúru og að nýta allar afurðir sem best, að því er fram kemur á visir.is.
Það er alveg hundrað prósent nýting hjá okkur strákunum, við erum alveg á móti matarsóun
, segir Jónas og nefnir sem dæmi að hann hafi nýverið náð sér í greni sem hann notar til þess að búa til greniolíu. Greniolíuna stefni hann meðal annars á að nota til þess að bragðbæta ís. Einnig hafa þeir notað greniköngla í matreiðsluna.
Ég nota könglana sem krydd. Þeir gefa rosalega góðan svona jólakeim.
, segir Jónas í samtali við visir.is og bætir við að ekki þurfi að leita langt yfir skammt og mikið sé af náttúruafurðum sem hægt sé að nýta.
Það er til dæmis haugarfi sem fólk lítur ekki við. En þegar þú ert búin að þrífa arfann og borðar hann er þetta bara eins og salat. Orðið haugarfi er bara mjög fráhrindandi og veldur því að fólk er hrætt við að borða hann. Fólk á að vera óhrætt og nota hugmyndaflugið, það er hægt að nýta allt.
, segir Jónas að lokum í samtali við visir.is.
Meðfylgjandi myndir eru úr eldhúsi þeirra á Hannesarholt Restaurant.
Myndir: af facebook síðu Hannesarholt Restaurant.
![]()
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Keppni1 dagur síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Markaðurinn2 dagar síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins
-
Markaðurinn21 klukkustund síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Markaðurinn2 dagar síðanRummo-pasta komið á matseðil skóla í Hafnarfirði
-
Markaðurinn3 dagar síðanKjarnafæði býður allt að 49% afslátt af kjötvörum














