Vertu memm

Pistlar

Ferðasaga – Heimsþing WORLDCHEFS í Abu Dhabi – Myndir

Birting:

þann

Heimsþing WORLDCHEFS í Abu Dhabi 2022 - Árni Þór Arnórsson

Árni Þór Arnórsson matreiðslumeistari.
Í Abu Dhabi var hitastigið á bilinu 38°-45°

Dagana 30. maí til 2. júní var haldið heimsþing Worldchefs í Abu Dhabi en þingið er haldið á tveggja ára fresti.  Það voru um 400 kokkar hvaðan af úr heiminum sem mættu til hins sólríka og heita stað við Persaflóa.

Leiðin lá frá Íslandi til London og svo þaðan var flogið beint til Abu Dhabi. Þess má geta að stutt er á milli Abu Dhabi og Dubai eða c.a. 45 mínútna keyrsla.  Í Abu Dhabi var hitastigið á bilinu 38°-45° en það kom ekki að sök þar sem flest rými innivið voru oft á tíðum með hitastigi sem við Íslendingar þekkjum vel.

Heimsþing WORLDCHEFS í Abu Dhabi 2022 - Árni Þór Arnórsson

Hilmar Bragi Jónsson matreiðslumeistari var heiðraður á þinginu fyrir vel unnin störf hjá Alheimssamtökunum

Fjöldi forseta kokkaklúbba út um allan heim var mættur á staðinn ásamt fjölmörgum öðrum þinggestum. Mikill tími fór í fyrirlestra og flottar kynningar á ýmsum efnum og vörum.  Einnig fór nokkur tími í að ræða um sjálfbærni sem allir virðast vera uppteknir af þessa dagana en menn eiga erfitt að tileinka sér þá hugsunarhætti.

Mikið var kynnt öll þau prógrömm og námskeið á netinu. Hvet ég sem flesta að kynna sér það á vefslóðinni: www.worldchefs.org

Einnig voru mættir fjölmargir ungliðar og var sérstakt prógramm fyrir þá en það prógramm var einstaklega vel skipulagt og mikið í það lagt.

Mikill fjöldi keppenda var einnig mættur á staðinn til að taka þátt í fjölda keppna sem haldnar voru á staðnum. En þær stærstu voru Global Pastry Chef, Global Chef og Global Young Chef.

Einnig voru haldnar keppnir á vegum Kokkaklúbbs UAE (sameinuðu arabísku furstadæmanna).

Það að taka þátt í alþjóðlegu starfi eins og að sitja á þingi sem þessu veitir innsýn inn í það sem aðrir eru að gera annarsstaðar í heiminum og að búa til tengsl er mjög dýrmætt og getur hjálpað okkur með ýmis mál.

Heimsþing WORLDCHEFS í Abu Dhabi 2022 - Árni Þór Arnórsson

Maria Shramko sykurskreytingarmeistari og liðsmaður í Íslenska Kokkalandsliðinu til fjölda ára var heiðruð á þinginu fyrir vel unnin störf hjá Alheimssamtökunum

Einnig getum við hjálpað öðrum þjóðum með ýmislegt þá sérstaklega þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í því að stofna klúbba matreiðslumeistar hingað og þangað í heiminum. Þá sérstaklega núna þá sem er verið að stofna í löndum Afríku.

Næsta heimsþing verður haldið árið 2024 og verður það haldið í Singapúr og verður fundarstaðurinn á hinu fræga Marina Bay Sands hótelinu sem er heimsfrægt fyrir að hafa sundlaug á toppnum  en hún er á toppi hótelsins sem er 57 hæðir.  Ég hvet sem flesta til að prófa að upplifa svona þing og víkka hjá sér sjóndeildarhringinn. Svo nú er bara að fara að skipuleggja ferð til Singapúr árið 2024.

Heimsþing WORLDCHEFS í Abu Dhabi 2022 - Árni Þór Arnórsson

Hér eru helstu úrslit úr keppnum sem haldnar voru af Worldchefs:

Global Chefs Challenge

  1. sæti – Ítalía (Marco Tomasi)
  2. sæti – Svíþjóð (Michael Andersson)
  3. sæti – Singapúr (Leong Wei Ming)

Global Pastry Chefs Challenge

  1. sæti – Singapúr (Dexter Lee Chee Leong)
  2. sæti – Ítalía (Antonio Dell’Oro)
  3. sæti – Frakkland (Nabil Barina)

Global Young Chefs Challenge

  1. sæti – Noregur (Aron Espeland)
  2. sæti – Ítalía (Giorgia Ceccato)
  3. sæti – Svíþjóð (Harald Linder)

Besta notkun á TE  Sameinuðu Arabísku Furstadæmin (Aravinda Leelarathna)

Besti fiskur Global Chefs Challenge Pólland (Bartosz Peter)

Besti Fiskur Global Young Chefs Challenge Noregur (Aron Espeland)

Öll úrslit er hægt að finna hér.

 

© Árni Þór Arnórsson – Varaforseti Klúbbs Matreiðslumeistara og Abu Dhabi-fari.

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið