Viðtöl, örfréttir & frumraun
Eyjafjarðarsveit semur við Snæbjörn matreiðslumeistara til 2029

Finnur Yngvi sveitarstjóri og Snæbjörn H. Kristjánsson matreiðslumeistari takast í hendur við undirritun nýs þjónustusamnings um mötuneyti Hrafnagilsskóla.
Eyjafjarðarsveit hefur gert nýjan þjónustusamning um rekstur mötuneytis Hrafnagilsskóla við matreiðslumeistarann Snæbjörn H. Kristjánsson, að loknu opnu útboðsferli. Snæbjörn hefur sinnt þjónustunni undanfarin ár og byggt upp gott orðspor, að því er fram kemur í tilkynningu sveitarfélagsins. Nýr samningur gildir fyrir tímabilið 2026 til 2029 með möguleika á framlengingu.
Í tilkynningu Eyjafjarðarsveitar segir að við gerð samningsins hafi verið lögð enn ríkari áhersla á gæði og uppruna hráefnis. Sérstaklega sé horft til aukinnar notkunar íslenskra matvæla, skýrari upprunamerkinga og aukins gagnsæis gagnvart notendum þjónustunnar. Þá er jafnframt lögð áhersla á að draga úr notkun gjörunninna matvæla.
Samkvæmt tilkynningunni er markmið samningsins að tryggja nemendum aðgang að fjölbreyttri, hollri og næringarríkri fæðu sem samræmist manneldismarkmiðum Embættis landlæknis. Einnig er lögð áhersla á að styðja við íslenska framleiðslu og minnka kolefnisspor með því að sækja hráefni sem næst heimabyggð.
„Eyjafjarðarsveit er stolt af því að geta, með nýjum samningi, haldið áfram markvissri vinnu við að efla matarmenningu í skólum sveitarfélagsins og skapa nemendum góðar forsendur fyrir heilsu og vellíðan,“
segir jafnframt í tilkynningunni.
Mynd: esveit.is
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanStórskotalið íslenskra Bocuse d’Or kokka sameinast á styrktarkvöldi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanPizza pop-up og sultukynning frá Helvítis Kokkinum á Norðurlandi
-
Markaðurinn6 dagar síðanMata hf. tekur við dreifingu á Nordic Wasabi
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanSjaldgæft japanskt viskí á matseðli hjá Gordon Ramsay, kostar yfir fjórar milljónir króna
-
Keppni4 dagar síðanJakob Alf stóð uppi sem sigurvegari
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanSkandinavísk matarupplifun vakti lukku á Siglufirði
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanDwayne Johnson setur aukinn kraft í útrás Teremana
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun23 klukkustundir síðanÍsak kokkur galdraði fram hátíðarmat fyrir áhöfn Björgúlfs EA 312




