Vertu memm

Keppni

EuroSkills 2023 – Glæsilegu Evrópumóti lokið með góðum árangri íslensku keppendanna

Birting:

þann

Úrslit í EuroSkills 2023 - Glæsilegu Evrópumóti lokið með góðum árangri íslensku keppendanna

Íslenski landsliðshópurinn sem tók þátt í Euroskills 2023 í Gdańsk í Póllandi ásamt Sigurði Borgari Ólafssyni, liðsstjóra.

Dagana 5. – 9. september fór Evrópumót iðn-, verk- og tæknigreina, Euroskills 2023, fram í Gdańsk í Póllandi. Ellefu ungir og efnilegir keppendur frá Íslandi tóku þátt í jafn mörgum iðn- og verkgreinum, en Ísland hefur aldrei átt jafn marga þátttakendur og á Evrópumótinu í ár.

Verðlaunaafhending og lokaathöfn Euroskills 2023 fór fram með pomp og prakt á stórum íþróttaleikvangi í Gdańsk frammi fyrir þúsundum áhorfenda í gærkvöldi. Þó Ísland hafi ekki átt verðlaunahafa á mótinu að þessu sinni náðu fjórir íslenskir keppendur framúrskarandi árangri og hlutu viðurkenninguna „Medallion for Excellence“, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Þá fékk Irena Fönn Clemmensen, Verkmenntaskólanum á Akureyri, sérstök verðlaun fyrir að vera stigahæsti keppandinn í íslenska landsliðinu, en hún keppti í hársnyrtiiðn.

Íslensku keppendurnir sem hlutu viðurkenninguna „Medallion for Excellence“:

  • Irena Fönn Clemmensen, Verkmenntaskólanum á Akureyri, fyrir framúrskarandi árangur í keppni í hársnyrtiiðn.
  • Finnur Guðberg Ívarsson, Hótel- og matvælaskólanum, fyrir framúrskarandi árangur í keppni í bakaraiðn.
  • Benedikt Máni Finnsson, Tækniskólanum, fyrir framúrskarandi árangur í keppni í iðnaðarstýringum.
  • Hinrik Örn Halldórsson, Hótel- og matvælaskólanum, fyrir framúrskarandi árangur í keppni í matreiðslu.

Íslensku keppendurnir og þjálfarar þeirra geta verið stoltir af þátttöku sinni í Euroskills 2023 og koma heim til Íslands frá Póllandi með troðfulla ferðatösku af minningum og reynslu sem mun nýtast þeim vel í sinni iðn- og verkgrein.

Stoltur af íslenska landsliðshópnum

„Árangur íslenska landsliðsins var mjög góður og andinn í hópnum var frábær.  Það sem er kannski mikilvægast er að keppendur hafa safnað mikilvægri reynslu og minningum sem þau varðveita til framtíðar.

Ísland hefur aldrei sent jafn marga fulltrúa í Euroskills, en ætla má að íslenski hópurinn hafi talið um 40 manns með þjálfurum og aðstoðarfólki. Ég er afskaplega stoltur af þessum hópi og er sannarlega bjartsýnn á framtíðina þegar kemur að iðn- og verknámi á Íslandi.“

Segir Georg Páll Skúlason, formaður Verkiðnar / Skills Iceland.

Öflugur landsliðshópur

Ellefu ungir og efnilegir fulltrúar taka þátt í eftirfarandi greinum:

  • Bakaraiðn – Finnur Guðberg Ívarsson, Hótel- og matvælaskólinn
  • Framreiðsla – Finnur Gauti Vilhelmsson, Hótel- og matvælaskólinn
  • Grafísk miðlun – Olivier Piotr Lis, Tækniskólinn
  • Hársnyrtiiðn – Irena Fönn Clemmensen, Verkmenntaskólinn á Akureyri
  • Iðnaðarstýringar – Benedikt Máni Finnsson, Tækniskólinn
  • Kjötiðn – Bríet Berndsen Ingvadóttir, Hótel- og matvælaskólinn
  • Matreiðsla – Hinrik Örn Halldórsson, Hótel- og matvælaskólinn
  • Pípulagnir – Kristófer Daði Kárason, Tækniskólinn
  • Rafeindavirkjun – Hlynur Karlsson, Tækniskólinn
  • Rafvirkjun – Przemyslaw Patryk Slota, Verkmenntaskóli Austurlands
  • Trésmíði – Van Huy Nguyen, Tækniskólinn

Næsta Euroskills fer fram árið 2025 í Herning í Danmörku.

Fleiri Euroskills fréttir hér.

Mynd: Mín Framtíð

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið