Keppni
Euroskills hópurinn fékk hlýjar móttökur hjá forseta Íslands
„Ég hef lengi haft mikinn áhuga, virðingu og þakklæti til þeirra sem stunda verk- og iðnnám og held að vegur þess þurfi að vera enn meiri í okkar samfélagi.“
Þetta sagði Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, þegar hún ávarpaði keppendur, experta, starfsfólk og aðstandendur keppenda í móttöku á Bessastöðum í gær, 15. september. Forsetinn bauð hópnum heim til að fagna árangri þeirra á Euroskills, Evrópumóti iðn- og verkgreina, sem fram fór í Herning í Danmörku dagana 9.-13. september.
Ísland sendi 13 keppendur til leiks á Euroskills. Gunnar Guðmundsson, keppandi í iðnaðarrafmagni, vann til bronsverðlauna í sinni keppnisgrein en þetta er í annað sinn sem Ísland kemst á pall á Euroskills. Auk árangurs Gunnars hlutu tveir íslenskir keppendur „Medal of excellence“, viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur. Það voru Andrés Björgvinsson fyrir matreiðslu og Daniel Francisco Ferreira, sem keppti í húsarafmagni.
Sjá einnig: Andrés Björgvinsson í matreiðslu hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur
Forseti afhenti öllum keppendum og expertum auk liðsstjóra viðurkenningarskjöl fyrir þátttökuna á Euroskills en hún afhenti einnig þeim sem sköruðu fram úr sín verðlaun.
Óskar Hafnfjörð Gunnarsson, stjórnarmaður í Verkiðn, sem skipuleggur þátttöku Íslands á Euroskills, hélt tölu þar sem hann fór meðal annars yfir hvernig staðið er að skipulagningu og fjármögnun þessa stóra og mikilvæga verkefnis. Þátttaka Íslands á Euroskills væri ekki möguleg án aðkomu stéttarfélaga, menntastofnana, stjórnvalda og annarra bakhjarla verkefnisins.
Eftir athöfnina bauð forsetinn hópnum til veitinga áður en myndataka fór fram á tröppunum á Bessastöðum. Veðrið lék við hópinn á þessum fallega haustdegi.
Hópurinn, sem lenti seint kvöldið áður, fær nú kærkomna hvíld eftir mikla vinnu í Herning. Halla hafði orð á því í ræðu sinni hversu ánægð hún væri með fulltrúa Íslands í þessari keppni. „Ég sé það bara, á því hvernig þið komið fyrir, að þið voruð landi og þjóð til sóma,“ sagði hún meðal annars.
Þess má geta að heimsókninni og árangri Íslands á Euroskills hafa verið gerð skil í flestum veigameiri fjölmiðlum landsins.
Myndir frá gærdeginum á Bessastöðum er hægt að skoða á vef matvis.is hér.
-
Keppni5 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn5 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Markaðurinn4 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni5 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Keppni3 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt6 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Markaðurinn2 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana




