Pistlar
Er tíminn afstæður?
Ég er pirraður maður að eðlisfari og fer fátt meira í taugarnar á mér heldur en óstundvísi. Í nútíma samfélagi er nánast allt tímasett á einn eða annan veg. Allar almenningssamgöngur eru tímasettar, þó svo skiptar skoðanir eru um hvort þessar tímasetningar standist. Ef eitthvað amar að þér og þú þarf að leita til náðar heilbrigðisgeirans er einnig nauðsynlegt að fá úthlutaðan tíma, einnig hér eru skiptar skoðanir á sveimi. Opnunartími verzlana. Panta þarf tíma á bílaverkstæði, í klippingu, hjá sálfræðingi.
Nemendur í skólum landsins skulu mæta á tilsettum tíma eða hljóta refsingu fyrir í formi einhverskonar punkta. Atvinnurekendur ætlast meira að segja til, að menn rífi sig á fætur fyrir allar aldir og drattist í vinnu á réttum tíma. Annars verða menn hýrudregnir eða reknir, eða jafnvel bæði. Síðasta dæmið sem ég hef kynnst (og þar sem ektakvinnan mín er leikskólakennari, hefur þetta umræðuefni valdið skemmtilegt koddahjal) er í leikskólum Reykjavíkurborgar, þar bera menn að sækja afkvæmi sín á tilsettum tíma, þótt svo að maður sé mjög svo upptekin maður og svo til ómissandi á vinnustaðnum (að eigin sögn), þessi staðreynd um eigið ágæti, skiptir þó engu máli í heimi dagvistunarinnar. Barnið er með vistun til 16 og ber því að ná í það klukkan 16, ekki 16:15, og alls ekki klukkan 17:00.
Eins og ofantalin upptalning sýnir, er nánast allt í kringum okkur tímasett á einn eða annan veg. Og bera allir fullan skilning á því að virða þessar tímasetningar. Annars myndi þjóðfélagið eins og við þekkjum það væntanlega ekki ganga. En þegar kemur að veitingageiranum gilda allt í einu einhverjar allt aðrar leikreglur ??? Þetta sama fólk, sem fyrr um daginn ætlaðist til að maður mætti á réttum tíma hjá tannlækninum, hjá rakaranum, hjá sála, og síðast en ekki síst að ná í afkvæmin á tilsettum tíma, eiga nú öll pantað borð klukkan 19, en engin mætir á réttum tíma ? Þegar þau mæta svo 30-60 mínútum of seint, setur þjóninn upp sparibrosið, býður þeim fordrykk og lætur eins og ekkert sé. Borðin eru auðvitað tvíbókuð og eina vonin er að seinna „hollið“ er jafnt óstundvíst og fyrra „hollið“.
Annað sem mér þykir furðulegt er að opnunartími veitingahúsa er hunsaður í hvívetna. Ég efast ekki um að einhverjir hafa lent í því að þurfa að opna 1-2 klukkutímum fyrr til að sinna þörfum einhvers viðskiptavins. Einnig eru lokunartímar hundsaðir, hversu oft hafa „bakka-berarnir“ ekki þurft að hanga yfir borði í 2-3 klukkutíma, fram yfir auglýstan lokunartíma, og þetta sama fólk verður svo stein-hissa þegar þjóninn missir loks þolinmæðina og biður þá (kurteisislega) að yfirgefa svæðið. Ég var til dæmis staddur í verzlun um daginn og klukkan 18 lokaði verzlunin og var ég þá strax beðinn að yfirgefa verzlunina, engin skilningur var sýndur þótt svo að innkaupsleiðangrinum mínum var engan vegin lokið. Hvernig stendur á þessu ? Gilda einhverjar aðrar þjóðfélagsreglur í veitingargeiranum ? Mér er spurn um hvort að þetta sé vandamál sem að alltaf hefur verið til staðar, er þetta svona allstaðar í heiminum eða bara landlægt ? Er hægt að gera eitthvað til að bæta úr þessu ? Ég þykist vera nokkuð viss um að borðanýting og vinnuálag myndi stórlagast ef allar tímasetningar stæðust, bara svona eins og annarstaðar í þjóðfélaginu.
Andreas Jacobsen – mai 2002
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðan
Nýr veitingastaður á Laugarvatni – Sunneva og Sæþór: Við viljum að allir sem koma líði eins og þeir séu heima hjá sér
-
Keppni1 dagur síðan
Grétar Matthíasson er Meistari meistaranna
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðan
Nýtt veitingasvæði rís í austurenda Smáralindar – 13 nýir veitingastaðir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðan
Kristinn Frímann bauð upp á glæsilegt jólahlaðborð á togaranum Kaldbak – Myndir
-
Bocuse d´Or4 dagar síðan
Sindri Guðbrandur keppir 27. janúar í Bocuse d´Or
-
Markaðurinn12 klukkustundir síðan
Mesta úrval Japanskra hnífa á Íslandi
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Dill opnar á ný eftir breytingar – nú með nýju borðabókunarkerfi Noona
-
Keppni2 dagar síðan
Matreiðslukeppni stjórnmálaflokkana í húsi Fagfélagana