Keppni
Ellefu keppendur frá Íslandi taka þátt í Euroskills í Póllandi – Snapchat TakeOver
![Íslenski landsliðshópurinn sem tekur þátt í Euroskills 2023 í Gdańsk í Póllandi ásamt Georgi Páli Skúlasyni, formanni Verkiðnar / Skills Iceland og Sigurði Borgari Ólafssyni, liðsstjóra.](https://veitingageirinn.is/wp-content/uploads/2023/09/euroskills2023_islensku_keppendurnir-2-1024x683.jpg)
Íslenski landsliðshópurinn sem tekur þátt í Euroskills 2023 í Gdańsk í Póllandi ásamt Georgi Páli Skúlasyni, formanni Verkiðnar / Skills Iceland og Sigurði Borgari Ólafssyni, liðsstjóra.
Opnunarhátíð Euroskills, Evrópumót iðn-, verk-, og tæknigreina í Gdańsk í Póllandi fer fram í dag, en keppnin stendur yfir dagana 6. – 8. september og lokaathöfn og verðlaunaafhending fer síðan fram laugardaginn 9. september.
Euroskills fer að jafnaði fram annað hvert ár og hefur Ísland átt fulltrúa í keppninni frá árinu 2007, en aldrei jafn marga og í ár eða 11 talsins. Á síðasta Evrópumóti, sem fram fór í Búdapest í Ungverjalandi, vann Ísland til silfurverðlauna í rafeindavirkjun.
Öflugur landsliðshópur
Ellefu ungir og efnilegir fulltrúar taka þátt í eftirfarandi greinum:
- Bakaraiðn – Finnur Guðberg Ívarsson, Hótel- og matvælaskólinn
- Framreiðsla – Finnur Gauti Vilhelmsson, Hótel- og matvælaskólinn
- Grafísk miðlun – Olivier Piotr Lis, Tækniskólinn
- Hársnyrtiiðn – Irena Fönn Clemmensen, Verkmenntaskólinn á Akureyri
- Iðnaðarstýringar – Benedikt Máni Finnsson, Tækniskólinn
- Kjötiðn – Bríet Berndsen Ingvadóttir, Hótel- og matvælaskólinn
- Matreiðsla – Hinrik Örn Halldórsson, Hótel- og matvælaskólinn
- Pípulagnir – Kristófer Daði Kárason, Tækniskólinn
- Rafeindavirkjun – Hlynur Karlsson, Tækniskólinn
- Rafvirkjun – Przemyslaw Patryk Slota, Verkmenntaskóli Austurlands
- Trésmíði – Van Huy Nguyen, Tækniskólinn
Fulltrúar Íslands eiga það sameiginlegt að hafa borið sigur úr býtum á Íslandsmóti iðn- og verkgreina sem fór fram í Laugardalshöll í mars sl. Um 600 keppendur frá 32 þjóðum munu etja kappi á Euroskills ásamt þjálfurum sínum og fylgdarliði. Keppt verður í 42 greinum og má búast við um 100 þúsund áhorfendum í Gdańsk dagana 5. – 9. September. Íslensku keppendunum fylgja þjálfarar og fylgdarlið og telur íslenski hópurinn um 40 manns.
Mikilvægt fyrir framþróun í iðn- og verknámi
„Að taka þátt í Euroskills er mjög mikilvægt fyrir framþróun í iðnaði og ekki síður fyrir iðn -og verknám á Íslandi,“
segir Georg Páll Skúlason, formaður Verkiðnar eða Skills Iceland eins og samtökin heita á alþjóðavettvangi.
Euroskills er haldin af WorldSkills Europe sem er hluti af alþjóðlegu WorldSkills hreyfingunni og hefur það að markmiði að kynna iðn- og verknám og möguleika þess.
„Samtökin vinna markvisst með stjórnvöldum og iðnaði til að undirbúa samfélagið undir störf framtíðarinnar.
Hvert þátttökuland keppist um að þróa færni sína í hverri grein og þátttaka í Euroskills stuðlar einnig að öflugri starfsþróun þeirra iðn- og verkgreinakennara sem taka þátt í þjálfun okkar efnilegu fulltrúa sem keppa fyrir Íslands hönd,“
segir Georg Páll.
Snúa aftur heim með mikla reynslu
Sigurður Borgar Ólafsson er liðsstjóri íslenska landsliðshópsins, en hann er útskrifaður framreiðslumaður og tók þátt í síðasta Euroskills sem fram fór í Búdapest í Ungverjalandi árið 2018.
„Það er mikið stuð í hópnum og mikill spenningur að hefja leika á Euroskills hér í Gdańsk. Þetta er mjög öflugur hópur, enda best í sínu fagi á Íslandi eftir að hafa orðið Íslandsmeistarar í sinni iðn- og verkgrein.
Það er ekki mikilvægast að landa gullverðlaunum á Euroskills, heldur mikið frekar að vera ánægður og líða vel með að taka þátt. Koma síðan heim til Íslands með mikla reynslu og gott veganesti sem hægt er að miðla áfram,“
segir Sigurður Borgar.
Snapchat TakeOver
Landsliðshópurinn taka við snappinu hjá Veitingageiranum og sýna frá undirbúningi, keppninni og fleira skemmtilegu.
Veitingageirinn.is verður einnig á fréttavaktinni. Hægt er að lesa fyrstu fréttavaktina með því að smella hér.
Myndir: aðsendar
![](https://veitingageirinn.is/wp-content/uploads/2018/02/veitingageirinn.png)
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
Saga barónanna lifir – Veitingahúsið Hornið heldur upp á 46 ára afmæli
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
Viðskiptavinir okkar eiga skilið að hafa valkost: Segir Sigurður um ákvörðun MooGoo að vera opinn allt árið
-
Frétt4 dagar síðan
Jamie Oliver rífur þögnina um erfitt samband sitt við Marco Pierre White
-
Frétt4 dagar síðan
Launahækkun í næsta launaumslagi – Allir eiga að fá hækkun, hvort sem þeir eru á taxtalaunum eða umsömdum launum
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Fróðlegt námskeið á Tipsý með viskísérfræðingnum Toffa frá Dillon
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðan
Ný bylgja í vínheiminum – Fyrsta áfengislausa vínverslunin opnar í hjarta vínborgarinnar Bordeaux
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðan
Kaffipressan kaupir Kaffistofuna – styrkir sérkaffimenningu á Íslandi
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðan
Hvað er Heitast á BWW 2025? Sóley Björk og fremstu vínsérfræðingar heims afhjúpa leyndardóma Spænskra vína