Frétt
Cabin kaupir Hótel Laki við Kirkjubæjarklaustur

F.v. Þorsteinn M. Kristinsson og Eva Björk Harðardóttir, Hótel Laka, Jóhann Sigurðsson, framkvæmdastjóri Cabin ehf og Hörður Davíðsson og Salóme Ragnarsdóttir, Hótel Laka.
Cabin ehf hefur gengið frá kaupum á Hótel Laka við Kirkjubæjarklaustur, samkvæmt tilkynningu. Kaupverð er trúnaðarmál.
Með kaupunum bætist rótgróið og öflugt hótel við rekstur félagsins, sem fyrir rekur Hótel Cabin, Hótel Örk og Hótel Klett. Þá stendur yfir undirbúningur að opnun Moxy Reykjavík, sem áætlað er að opni árið 2028.
Hótel Laki er afar vel staðsett á Suðurlandi og hefur um árabil verið vinsælt meðal bæði innlendra og erlendra ferðamanna. Hótelið hefur notið góðs orðspors fyrir vandaða þjónustu, notalegt umhverfi og einstaka nálægð við helstu náttúruperlur svæðisins. Útsýni frá hótelinu er einstakt, enda stendur það á milli jökla og eldfjalla.
„Við erum afar ánægð með að Hótel Laki bætist í hóp okkar hótela. Hótelið er frábær viðbót við reksturinn og fellur vel að þeirri framtíðarsýn okkar að byggja upp öflugt safn hótela á Íslandi, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni,“
segir Jóhann Sigurðsson, framkvæmdastjóri Cabin ehf, í tilkynningunni.
Stolt af því að afhenda keflið
„Við hjónin og fjölskylda okkar, sem höfum byggt upp þennan rekstur frá árinu 1973, erum afar stolt af því að geta afhent keflið nýjum aðila sem hyggst halda starfseminni áfram af fagmennsku og metnaði,“
segja Hörður Davíðsson og Salóme Ragnarsdóttir, stofnendur Hótel Laka.
Með kaupunum styrkir Cabin enn frekar stöðu sína á íslenskum hótelmarkaði og eykur viðveru sína á Suðurlandi, sem er eitt vinsælasta ferðamannasvæði landsins. Fram kemur að lögð verði áhersla á að byggja áfram á þeim sterka grunni sem þegar hefur verið lagður hjá Hótel Laka, viðhalda þeim gæðum sem einkennt hafa reksturinn og skapa frekari tækifæri til vaxtar.
Rekstur hótelsins mun halda áfram með óbreyttum hætti. Ráðist verður í nauðsynlegar endurbætur og jafnframt skoðaðir möguleikar á frekari uppbyggingu. Þá verður áfram lögð áhersla á gott samstarf við starfsfólk, viðskiptavini og nærsamfélagið.
Áætlað er að afhending fari fram eigi síðar en 1. maí. Gert er ráð fyrir að viðskiptin taki gildi að uppfylltum fyrirvörum, þar á meðal samþykki samkeppnisyfirvalda. Ráðgjafar seljenda í viðskiptunum voru KPMG, en ráðgjafar kaupanda voru Civitas og LEX.
Myndir: aðsendar
-
Bocuse d´Or5 dagar síðanSnædís komst áfram í úrslit Bocuse d’Or
-
Bocuse d´Or6 dagar síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Bocuse d´Or5 dagar síðanMyndasyrpa. Snædís skilar réttunum til dómara
-
Bocuse d´Or6 dagar síðanFréttavaktin: Snædís keppir í Bocuse d’Or
-
Keppni4 dagar síðanHrafnkell Ingi hlýtur titilinn besti barþjónninn – myndir frá verðlaunahátíðinni
-
Markaðurinn5 dagar síðanHeilsárshótel á Vesturlandi leitar að nýjum hótelstjóra eða rekstraraðila
-
Markaðurinn4 dagar síðanTandur fyrst á Íslandi til að Svansvotta snyrtivörur
-
Markaðurinn6 dagar síðanSnædís Xyza keppir í Bocuse d’Or Europe í dag






