Vertu memm

Markaðurinn

Bolla sem svíkur ekki bragðlaukana

Birting:

þann

Epla og kanil bollur

Krönsið er algjörlega ómissandi með þessu, brýtur upp áferðina og gerir hana öðruvísi á einfaldan hátt. Þið verðið allaveganna ekki svikin á því að prófa þessa!

Vatnsdeigsbollur
– u.þ.b. 15 bollur

250 ml vatn
125 g smjör
125 g hveiti
4 egg

Stillið ofn á 180°C. Setjið vatn og smjör í pott og leyfið smjörinu að bráðna. Takið pottinn af hitanum og hrærið hveitinu saman við þar til deigið er orðið einn massi. Kælið deigið örlítið. Bætið eggjunum út í einu í einu og hrærið vel á milli.

Setjið deigið í sprautupoka og sprautið bollur á smjörpappírsklædda plötu, eða notið tvær teskeiðar til setja deigið á plötuna. Bakið í 18-20 mínútur.  Ef þið viljið hafa bollurnar stærri þá er tíminn aukinn í samræmi við það.

Kröns

50 g smjör
50 g hveiti
50 sykur
½ tsk. kanill

Stillið ofninn á 180°C. Blandið öllum hráefnum saman í skál og hnoðið saman með höndunum þangað til að allt er samlagað.

Dreifið á smjörpappírsklædda ofnplötu og bakið inn í ofni í u.þ.b. 10 mín. Myljið niður í litlar einingar og part í mylsnu.

Veisluþjónusta

Karamellusósa

200 g sykur
90 g smjör
120 g rjómi frá Gott í matinn
1 tsk. salt, eða eftir smekk

Setjið sykurinn í pott og stillið á miðlungshita. Leyfið sykrinum að bráðna. Reyna að hræra sem minnst í sykrinum til að karamellan kristallist síður. Þegar sykurinn er bráðnaður, takið pottinn af hitanum og bætið smjörinu saman við og hrærið á meðan.

Þegar smjörið og sykurinn hafa blandast saman hellið rjómanum í mjórri bunu saman við. Ef hráefnin eru köld þarf mögulega að setja pottinn aftur á helluna og leyfa karamellunni að sjóða í smá stund í viðbót eða þangað til allt er vel samblandað.

Bætið teskeið af salti saman við í lokin.

Epla og kanil bollur

Samsetning

Epla og kanil sulta frá St. Dalfour
500 ml rjómi frá Gott í matinn, þeyttur
Karamellusósa
Kröns

Skerið bollurnar í tvennt og setið matskeið af sultu í botninn á hverri bollu, gott er að setja rjómann í sprautupoka og sprauta hring á hverja bollu, dreifið smávegis af karamellusósu yfir rjómann og lokið síðan bollunum.

Dreifið karamellusósu yfir lokið og bætið krönsinu ofan á karamellusósuna á hverri bollu.

Skoða nánar hér.

Uppskriftirnar á veitingageirinn.is eru frá fagmönnum og áhugafólki á matargerð sem skilar fjölbreyttar og bragðgóðar uppskriftir til þín. Ef þú lumar á uppskrift sem þú vilt birta á veitingageirinn.is sendu okkur þá uppskriftina ásamt nafni á [email protected]

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið