Frétt
Bakarar selja brjóstabollur til styrktar krabbameinsrannsóknum
Félagsmenn í Landssambandi bakarameistara, LABAK, efna til sölu á brjóstabollum í bakaríum um allt land um mæðradagshelgina, dagana 11.-14. maí. Salan á bollunum er til stuðnings styrktarfélaginu Göngum saman, en félagið styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini og úthlutar styrkjum í október ár hvert. Sala á brjóstabollum er orðinn árviss viðburður í bakaríum um mæðradagshelgina og eru bakarí félagsmanna LABAK skreytt með veggspjöldum með mynd af bollunni í tilefni verkefnisins.
Jóhannes Felixson, formaður LABAK, segir brjóstabolluna í ár vera bollaköku með gómsætu smjörkremi sem minnir á brjóst.
„Við höfum undanfarin sex ár efnt til sölu á brjóstabollum á mæðradagshelginni til stuðnings Göngum saman í þeim tilgangi að leggja lið mikilvægum rannsóknum á brjóstakrabbameini. Á þessum sex árum hefur tekist að safna um átta milljónum króna og nú stefnum við að því að bæta um betur. Við höfum hvatt sem flesta bakara til að taka þátt enda munar um minna fyrir rannsóknirnar að fá þennan stuðning frá LABAK.
Það er ekki amalegt fyrir okkur bakarana að geta boðið landsmönnum upp á bragðgóðar bollur um leið og við styrkjum gott málefni. Við hvetjum fyrirtæki og stofnanir til að bjóða starfsmönnum upp á bollur með kaffinu á fimmtudag og föstudag og síðan er tilvalið að taka þátt í mæðradagsgöngum sem verða um allt land og gæða sér á brjóstabollum að göngu lokinni.”
Styrktarfélagið Göngum saman leggur áherslu á mikilvægi hreyfingar til heilsueflingar. Félagið efnir til vorgöngu fyrir alla fjölskylduna víða um land á mæðradaginn sunnudaginn 14. maí og hefjast allar göngur kl. 11. www.gongumsaman.is
Eftirtalin bakarí selja brjóstabollur:
- Bakarameistarinn, Austurveri, Glæsibæ, Húsgagnahöllinni, Mjódd og Suðurveri í Reykjavík, Smáratorgi í Kópavogi og Flatahrauni í Hafnarfirði
- Bakarinn, Ísafirði
- Björnsbakarí, Austurströnd, Dalbraut, Fálkagötu og Hringbraut í Reykjavík
- Brauða- og kökugerðin, Akranesi
- Brauðgerð Kr. Jónssonar & Co., Akureyri
- Geirabakarí, Borgarnesi
- Guðnabakarí, Selfossi
- Hjá Jóa Fel., Garðatorgi í Garðabæ, Holtavegi, JL húsinu og Kringlunni í Reykjavík og Smáralind í Kópavogi
- Kökuhornið, Bæjarlind í Kópavogi
- Kökuval, Hellu
- Mosfellsbakarí, Háleitisbraut í Reykjavík og Háholti í Mosfellsbæ
- Okkar bakarí, Iðnbúð og Strikinu í Garðabæ
- Sauðárkróksbakarí, Sauðárkróki
- Sigurjónsbakarí, Keflavík
- Stofan bakhús, Vestmannaeyjum
- Sveinsbakarí, Arnarbakka, Engihjalla og Skipholti í Reykjavík
- Valgeirsbakarí, Njarðvík
- Vort daglegt brauð, Strandgötu í Hafnarfirði
Mynd: aðsend
-
Keppni4 dagar síðanMyndir: Negroni vikan málaði bæinn rauðan
-
Frétt6 dagar síðanMatreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir: Ferðalag skreiðarinnar er umfangsmikið og margbrotið
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanHákon Bragi seldi hlut sinn í Fæby og tekur við nýju starfi hjá ISS
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanMyndasafn: Glæsilegt sælkerakvöld með Bocuse d’Or kokkum Íslands
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanÍsak Aron gefur út matreiðslubókina Bragð
-
Markaðurinn22 klukkustundir síðanEvogro ræktunarskápur hámarkar ferskleikann – nýjung hjá BVT
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanAurore: „Ég varð mjög nostalgísk þetta kvöld“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanHaustborgarinn á Grill 66 er með kóresku „kicki“




