Vertu memm

Keppni

Bæði íslensku liðin mæta til leiks á fyrsta degi heimsmeistarakeppninnar

Birting:

þann

Kokkalandsliðið - Logo -ISL

Nú hefur verið dregið um keppnisdaga fyrir heimsmeistarakeppnina í matreiðslu sem fram fer í Lúxemborg dagana 21.–25. nóvember 2026. Með drættinum liggur fyrir hvenær þjóðir stíga á svið í mismunandi greinum keppninnar.

Fyrst til að stíga inn í búrið í landsliðsflokki í Hot Kitchen er Kanada, en Sviss ríður á vaðið í Chef’s Table . Bæði íslensku liðin hefja keppni á fyrsta keppnisdegi. Junior-liðið keppir í Chef’s Table on Fire, þar sem Ísland verður þriðja liðið til að stíga inn í búrið . Landsliðið byrjar einnig á sama degi í Hot Kitchen og verður annað liðið til keppni þann dag, að því er fram kemur í tilkynningu frá Klúbbi Matreiðslumeistara.

Íslenska landsliðið byrjar í Hot Kitchen

Í landsliðsflokki (National Teams) keppir íslenska landsliðið í Hot Kitchen laugardaginn 21. nóvember, en síðan í Chef’s Table þriðjudaginn 24. nóvember .

Junior-liðið byrjar í Chef’s Table on Fire

Í junior landsliðsflokki keppir íslenska liðið í Chef’s Table on Fire laugardaginn 21. nóvember og síðan í Hot Kitchen mánudaginn 23. nóvember .

Dagarnir á milli keppnisgreina nýtast liðum vel til undirbúnings fyrir næsta keppnisdag, þar sem unnið er að skipulagi, æfingum og fínstillingu áður en aftur er stigið inn í búrið.

Heimsmeistarakeppnin í Lúxemborg er ein sú stærsta í heimi í matreiðslu og dregur að sér marga af fremstu kokkum heims. Drátturinn markar því mikilvægan áfanga í undirbúningi íslensku liðanna sem nú geta einbeitt sér að lokaundirbúningi fyrir keppnisdagana sína.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið