Frétt
Aðgerðir vegna matvæla sem innhalda mengað aukefni
Undanfarna mánuði hafa mörg lönd innan Evrópusambandsins orðið vör við að ákveðnar framleiðslulotur af aukefninu karóbgúmmí (E 410) hafa reynst mengaðar af etýlenoxíði sem er ólöglegt varnarefni. Matvæli sem innihalda mengað karóbgúmmí ber að taka af markaði.
Upplýsingarnar hafa borist Matvælastofnun með RASFF (Rapid Alert System for Food and Feed) viðvörunarkerfi Evrópusambandsins og EFTA-ríkjanna fyrir matvæli og fóður.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og aðildarríki ESB hafa lagt fram sameiginlegar leiðbeiningar um hvernig meðhöndla skuli matvæli sem innihalda þessi efni á samræmdan hátt.
Matvælastofnun hefur haft samband við fyrirtæki og eftirlitsaðila sem málið snertir. Vinna er hafin við að finna þessar vörur og taka af markaði. Efnið er m.a. notað í ís, unnar kjötvörur og sósur. Matvælafyrirtæki sem nota karóbgúmmí í framleiðslu sína eru hvott til að kanna það hjá birgja hvort efnið sé öruggt.
Etýlenoxíð hefur ekki bráða eiturvikni í litlu magni, eins og hér um ræðir, en langvarandi neysla getur haft skaðleg áhrif á heilsu. Efnið er notað sem varnarefni í ákveðnum heimshlutum, til dæmis til að sótthreinsa fræ og krydd. Ekki er leyfilegt að nota etýlenoxíð við matvælaframleiðslu innan ESB, né setja á markað matvæli sem innihalda það.
Samkvæmt samræmdum leiðbeiningum á að innkalla allar vörur sem geta innihaldið þetta mengaða efni. Þessar ráðstafanir eru íþyngjandi fyrir þau fyrirtæki sem um ræðir en aðgerðirnar eru nauðsynlegar til að tryggja öryggi neytenda. Matvælafyrirtæki sem hafa fengið tilkynningu um að mengað karóbgúmmi hafi verið notað í matvæli sem þau dreifa ber að stöðva drefingu þeirra, taka þau af markaði og innkalla frá neytendum. Tilkynna skal slíkar aðgerðir til eftirlitsaðila fyrirtækisins.
Á síðasta ári var töluvert um innkallanir á vörum sem innhéldu sesamfræ sem innihélt þetta ólöglega varnarefni.
Mynd: úr safni
-
Íslandsmót barþjóna5 dagar síðanReykjavík Cocktail Week lauk með úrslitum og hátíðarkvöldverði í Gamla Bíó – Myndaveisla
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun18 klukkustundir síðanFimm fagmenn, eitt kvöld og einstök matarupplifun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanTveir þekktir matreiðslumeistarar ganga til liðs við Múlakaffi
-
Frétt5 dagar síðanAftur greinist salmonella í nautahakki
-
Markaðurinn5 dagar síðanNý Heinz ChefsBottle hönnuð af kokkum fyrir kokka
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanDiskósúpa og fræðsla í forgrunni í átaki gegn matarsóun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanNý mathöll, fleiri verslanir og vinsælir viðburðir auka aðsókn í Smáralind
-
Markaðurinn6 dagar síðanPistasíu- og sítrónukaka sem bráðnar í munni




