Frétt
Metnaðarfull framtíðarsýn kynnt um sjókvíaeldi, landeldi, úthafseldi og þörungarækt
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra kynnti í gærmorgun drög að nýrri stefnumótun lagareldis.
Markmið stefnumótunarinnar ná til ársins 2040 og aðgerðaáætlun til ársins 2028.
Fundurinn var opinn og í streymi.
„Gjaldtaka af greininni þarf að endurspegla að um nýtingu takmarkaðra auðlinda er að ræða. Það er grundvallaratriði að þau sem hagnast á nýtingu náttúruauðlinda landsins greiði af því sanngjarnt gjald.
En það er ekki síður mikilvægt að við setjum okkur metnaðarfull, mælanleg, markmið í umhverfismálum og tímasetjum vörður á leiðinni til þeirra markmiða“.
Sagði matvælaráðherra.
Sjá einnig:
Uppbygging og umgjörð lagareldis – Stefna til ársins 2040
Takmark stefnumótunarinnar er að framtíðaruppbygging í lagareldi byggi á skýrum viðmiðum sjálfbærrar nýtingar, vistkerfisnálgunar og varúðar. Áhersla er lögð á að eftirlit, vöktun og rannsóknir með framleiðslunni standist ítrustu kröfur til að koma megi í veg fyrir að greinin hafi neikvæð áhrif á umhverfið í framtíðinni.
Upptaka: Kynning á stefnumótun í lagareldi
Til að ná þessum markmiðum eru settir fram hagrænir hvatar sem ætlað er að stuðla að því að rekstraraðilar fjárfesti í besta fáanlega búnaði, vinnuaðferðum og hæfu starfsfólki. Jafnframt hafi framkvæmd og frammistaða einstakra rekstraraðila áhrif á leyfi þeirra til rekstrar.
Fjármagn til rannsókna og vöktunar á vegum Hafrannsóknastofnunar er tryggt auk fjármagns til eftirlits og leyfisveitinga Matvælastofnunar. Í stefnunni jafnframt lagt upp með að leyfishafar greiði sanngjarnt gjald fyrir afnot af sameiginlegum auðlindum sem skili tekjum sem m.a. standi undir stjórnsýslu, rannsóknum og vöktun málaflokksins og nauðsynlegrar innviðauppbyggingar.
Þá er í stefnunni lögð til skipting á gjaldinu milli ríkis og sveitarfélaga til að tryggja að sveitarfélög geti fjármagnað nauðsynlega uppbyggingu innviða og þjónustu sem skapast af vexti greinarinnar.
Stefnan í samráðsgátt stjórnvalda þar sem umsagnarfrestur er til 4. nóvember nk.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Markaðurinn3 dagar síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Keppni5 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanMetnaðarfullur veitingastaður Róót opnar í Höfðatorgsturni
-
Markaðurinn5 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir





