Viðtöl, örfréttir & frumraun
Árni Þór Árnason er nýr yfirkokkur á Rub23
Árni Þór Árnason matreiðslumeistari er nýr yfirkokkur á veitingastaðnum Rub23 á Akureyri.
Árni hóf störf á Rub23 í gær 1. maí. Árni starfaði lengi sem yfirkokkur á Strikinu á Akureyri og lét af störfum í september í fyrra og hóf störf sem „Chef and catering manager“ í vinnubúðunum á Grenivík þar sem unnið er við hótelið Höfði Lodge. Árni er einn af forsprökkum Arctic Challenge, en AC eru félagssamtök gerð til þess að efla hugvit og ástríðu veitingamanna á Norðurlandi.
„Rub23 er alltaf Rub23 og er búið að skapa sér nafn og concept eins og fólk þekkir. Það verða ekki miklar breytingar til að byrja með svona fyrir sumarið, heldur smyrja vélina bara og fara yfir hlutina. Svo með haustinu fara kannski að sjást einhverjar breytingar, nýir réttir og vonandi eitthvað meira spennandi.“
sagði Árni í samtali við veitingageirinn.is aðspurður hvort einhverjar áherslubreytingar verða.
Veitingastaðurinn Rub23 var opnaður í júní 2008 við Kaupvangsstræti 23 á Akureyri. Í mars 2010 flutti staðurinn í stærra og hentugra húsnæði við Kaupvangsstræti 6.
Rub23 hefur að markmiði að bjóða upp á fjölbreyttan, einfaldan og spennandi valkost fyrir breiðan hóp viðskiptavina.
Veitingastaðurinn er rekinn af eigandanum Einari Geirsyni matreiðslumeistara.
-
Frétt3 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Frétt6 dagar síðanUPPFÆRT: Vagninn fundinn! Matarvagni stolið á meðan eigendur tóku á móti nýfæddri dóttur
-
Keppni4 dagar síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Keppni6 dagar síðanDublin Meets Reykjavík: Tíu barþjónar mætast í úrslitum í kvöld – Sjáðu myndirnar frá undankeppninni
-
Keppni3 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Bocuse d´Or4 dagar síðan„Draumurinn hefur alltaf verið að keppa í þessari keppni,“ segir Snædís
-
Markaðurinn5 dagar síðanMorgunverður í aðalhlutverki þegar Innnes býður í opið hús 19. mars








