Vertu memm

Frétt

Fiskréttur vanmerktur ofnæmis- og óþolsvöldum

Birting:

þann

Fiskréttur vanmerktur ofnæmis- og óþolsvöldum

Matvælastofnun varar neytendur við sem eru með ofnæmi eða óþol við Fiski í mangó karrýsósu frá Fiskverslun Hafliða vegna vanmerkinga á ofnæmis- og óþolsvöldum þ.e. sellerí og einnig getur varan innihaldið snefil af  eggjum, glúteni og sinnepi.

Fyrirtækið Icelandic Food Company ehf. hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu á vörunni og innkallað frá neytendum.

Úttekt á hótel- og veitingastöðum - Veisluþjónusta

Innköllunin á við allar best fyrir dagsetningar:

  • Vörumerki: Fiskverzlun Hafliða
  • Vöruheiti: Fiskur í mangó karrýsósu
  • Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: Allar best fyrir dagsetningar
  • Strikamerki: 2394013007148
  • Geymsluskilyrði: Kælivara
  • Framleiðandi: Icelandic Food Company ehf., Vatnagörðum 6, 104 Reykjavík.
  • Framleiðsluland: Ísland
  • Fyrirtæki: Icelandic Food Company ehf., Vatnagörðum 6, 104 Reykjavík.
  • Dreifing: Verslanir Krónunnar um land allt.

Neytendur sem eru með ofnæmi eða óþol fyrir sellerí, eggjum, glúteni og sinnepi er bent á að neyta hennar ekki, farga eða skila henni í næstu Krónu verslun.

Mynd: mast.is

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið