Frétt
Salmonella í þurrkuðum sveppum
Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af erlendum þurrkuðum sveppum Black fungus vegna salmonellu, sem Dai Phat flytur inn og selur í verslun sinni. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og innkallað vöruna.
Matvælastofnun fékk upplýsingar um innköllunina í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um matvæli og fóður.
Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Nam Meo
- Vöruheiti: Black fungus
- Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 10.10.2023
- Strikamerki: 8717624001321
- Nettómagn: 100 g
- Framleiðsluland: Víetnam
- Innflytjandinn: Dai Phat Trading Inc ehf., Faxafeni 14, 108 Reykjavík.
- Dreifing: Dai Phat Asian Supermarket, Faxafeni 14, 108 Reykjavík.
Nánari upplýsingar um Salmonellu eru aðgengilegar á vefsíðu Matvælastofnunar hér.
Neytendur sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki, farga eða skila henni til verslunar Dai Phat gegn endurgreiðslu.
Mynd: mast.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn3 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Markaðurinn2 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn2 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Keppni3 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins




