Keppni
Ísland lenti í 3. sæti á Ólympíuleikum matreiðslunema
Ísland lenti í 3. sæti á Ólympíuleikum matreiðslunema sem haldnir voru nú í vikunni, sem er besti árangur Íslands í keppninni. Úrslitin voru kynnt rafrænt nú rétt í þessu á Youtube.
Það var Halldór Hafliðason sem keppti fyrir hönd Íslands og honum til aðstoðar voru Kristvin Þór Gautason og Dagur Gnýsson.
Úrslit urðu:
Grand trophy – 1. til 10. sæti
1. sæti – Ítalía
2. sæti – Singapore
3. sæti – Ísland
Plate trophy – 11. til 20. sæti
1. sæti – Armenía
Sérstök verðlaun
Ísland fékk sérstök verðlaun fyrir:
Best hygiene and kitchen practice eða besta hreinlætið í eldhúsinu.
Ambassadors, stutt ritgerð um Halldór sem fjallar um hvernig matreiðsla hefur bætt lífið og gefið honum bjarta framtíð.
Lesa ritgerðina hér.
Þjálfari var Ægir Friðriksson matreiðslumeistari og kennari í Hótel-, og matvælaskólanum.
Ólympíuleikarnir fóru fram rafrænt en keppnin hefur venjulega verið haldin á Kolkata á Indlandi áður en kórónuveiran kom til sögunar. Keppnisaðstaða Halldórs var í Hótel-, og matvælaskólanum í Kópavogi. Er þetta í fimmta sinn sem að Ísland tekur þátt í Ólympíuleikunum.
Undanúrslit
Undanúrslitin fóru fram á mánudaginn og þriðjudaginn s.l. og tóku alls 50 lönd þátt í keppninni. Tuttugu lönd komust í úrslit og úrslitakeppnin virkaði þannig að tíu lönd kepptu um “Grand trophy“ sem er 1.-10. sætið og “Plate trophy” sem er 11.-20. sætið.
Halldór keppti á mánudeginum þar sem hann fór í gegnum hæfnispróf með því að framkvæma ákveðna skurði (Julienne, Brunoise, Jardiniere, Paysanne og Macedoine) og eldaði síðan fyllt pasta með sósu og í eftirrétt Crème caramel með ávaxtasósu.
20 lönd komust áfram og var Ísland þar á meðal í flokki Grand trophy.
Úrslit
Úrslitakeppnin var haldin í gær föstudaginn 4. febrúar og þar stóð Halldór sig frábærlega.
Halldór eldaði kjúklingarétt fyrir fjóra sem var pönnusteikt kjúklingabringa, kjúklingarúlla, sæt kartöflubolli með linsubauna ragú og tuille og soðgljái með kúrbít og tómötum.
Nota þurfti að minnsta kosti 50 prósent af eftirfarandi hráefnum:
| Hráefni | Magn | Hráefni | Magn |
| Sveppir | 100g | Kúrbítur | 150g |
| Tómatar | 150g | Sætar kartöflur | 1 stór |
| Laukur | 1 stór | Ferskur aspas | 100g |
| Hvítlaukur | 3 cloves | Puy linsubaunir | 150g |
| Ólifuolía | 125 ml | Gul paprika | 2 |
| Ósaltað smjör | 100g | Soy sósa | 75 ml |
| Ferskt mangó | 1 stór | Fennel | 1 knippi |
| Balsamic edik | 50 ml | Brúnt kjúklingasoð | 350 ml |
| Hvítvínsedik | 125 ml | Rótargrænmeti | 50g |
| Piparrót | 50g | Villi hrísgrjón | 100g |
| Ferskar kryddjurtir
|
Rósmarín, timían, stenselja, salvía, dill, mynta, graslaukur og basil |
Því næst gerði Halldór eftirrétt sem var þeytt súkkulaðimús með súkkulaðiskrauti, möndlu og aprikósukaka, appelsínubáta og appelsínumarmelaði.
Nota þurfti eftirfarandi hráefni:
| Dökkt súkkulaði 55% | 250g | Tilbúið marsipan | 100g |
| Þeyttur rjómi | 250ml | Möndlur | 100g |
| Egg | 4 | Apríkósusulta | 50g |
| Sykur | 100g | Agar Agar hlaup | 50g |
| Hveiti | 100g | Pectin | 75g |
| Fersk appelsína | 2 | Ferskt chilli | 2 |
| Fersk sítróna | 2 |
Tímarammi var rúmlega 2 klukkustundir.
Dagur Gnýsson sá einnig um að sýna alla keppnina frá Snapchat veitingageirans.
Fleiri fréttir frá Ólympíuleikum matreiðslunema hér.
Myndir: skjáskot úr beinni útsendingu, Ægir Friðriksson, Ólafur Sveinn Guðmundsson, skjáskot úr snapchat veitingageirans
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanMakona er nýr veitingastaður við Borgartún 26: Myndir frá opnunarhátíð staðarins
-
Markaðurinn2 dagar síðanRational í 50 ár og árið 2025 metár á Íslandi
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanHótel og matvælaskólinn endurtekur Meistaradaginn með nýrri áherslu
-
Food & fun3 dagar síðanMatarhátíðin Food & Fun fer fram í 23. sinn
-
Markaðurinn4 dagar síðanMánaðartilboð febrúar 2026: kjöt fyrir bolludag, sprengidag og öskudag
-
Markaðurinn2 dagar síðanMyndir: Peter De Wandel heimsótti Garra og kynnti nýjungar frá Ardo
-
Markaðurinn2 dagar síðanBragðmikil taco súpa með cheddar og sýrðum rjóma
-
Markaðurinn2 dagar síðanMinnkum matarsóun










