Frétt
Tilkynning frá SS vegna umræðu um hvað séu kótilettur og hvað ekki
Vegna umræðu um hvað séu kótilettur og hvað ekki er rétt að sýna sögun hjá SS á hryggjum fyrir pakkningu með kótilettum sem komið hefur til umræðu.
Skv. Kjötbókinni þá er hryggur skilgreindur með eftirfarandi hætti.
„Lambahryggur fæst með sögun úr miðjum skrokk. Hryggurinn er aðskilinn frá læri og framparti með þverskurði milli 6. og 7. spjaldhryggjarliðar og 5. og 6. brjóskhryggjarliðar. Hann er aðskilinn frá slögum með langskurði 12 cm frá miðlínu hryggsins. Í þessum hrygg er hvorki mjaðmaspaði né herðablað.“
Í skrokk eru 13 rif svo þessi skilgreining miðar við að það séu 8 rif í hrygg. Hryggir sem SS selur eru með 7 rifjum og því betri vara en Kjötbókin lýsir.
Á meðfylgjandi mynd má sjá 7 rifja hrygg fyrir sögun. Þverskurðurinn sem snýr fram (að frampartinum) sést. Á hinni myndinni sjást kótiletturnar sem koma úr hálfum svona hrygg. Sneiðarnar sem eru vinstra megin eru úr rifjahluta hryggsins en þær sem eru hægra megin eru úr lundarhluta hryggsins.
Sneiðarnar efst vinstra megin eru úr fremsta hluta hryggsins og svipaðar og þær sem birtar voru í fjölmiðlaumfjöllun.
Hver pakkning sem SS selur af þessum kótilettum er með um 16 kótilettum. Það er eðlilegt að af þessum 16 sneiðum þá séu 2-3 sem koma af fremsta hluta hryggsins.
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanGordon Ramsay undirbýr nýjan stað í hjarta London
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanHópuppsagnir hjá Hilton Nordica og Natura
-
Frétt4 dagar síðanCarlo Petrini er látinn, 76 ára að aldri
-
Markaðurinn6 dagar síðanFosshótel Jökulsárlón leitar að kokki og aðstoðarfólki í eldhús
-
Keppni17 klukkustundir síðanLeitað að bestu ostakökunni og brauðtertunni
-
Frétt3 dagar síðanErfið tímamót hjá Berjaya en rekstur félagsins heldur áfram
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanÍtalska keðjan Spaghetti House komin í þrot
-
Markaðurinn4 dagar síðanLokað hjá Mjólkursamsölunni mánudaginn 25. maí




